EPISODE · Jun 13, 2026 · 29 MIN
Breyting en ekki umbylting fyrir íslensk fyrirtæki ef Ísland gengi í ESB
from Gímaldið · host Gímaldið
Ef Ísland gengi í Evrópusambandið þá yrði það breyting fyrir íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu. Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Í samtali við Gímaldið segist höfundurinn vona að skýrslan sé gagnlegt framlag inn í umræðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Hallgrím Oddsson hagfræðing og framkvæmdastjóra Evrópustrauma. Það helsta úr viðtalinu:Skýrslan skoðar þrjú meginsvið: tolla, gjaldmiðil og regluumhverfi og skoðar hvað breytist fyrir íslensk fyrirtæki við ESB-aðildÍsland er í dag með 0% tolla á flestar vörur. Við aðild tækum við upp ytri tolla ESB sem eru hærri á ýmsum vöruflokkumStærsta tollbreytingin gagnvart þriðju ríkjum varðar Kína. Þar eru tollar ESB hærri en núverandi íslenskir tollarInni í tollabandalaginu sparast umsýsla og tollskýrslugerð, jafnvel þó tollar séu 0% nú kostar umsýslan sittVextir á fyrirtækjalánum eru yfir 10% á Íslandi en 3–6% í ESBUpptaka evru tekur langan tíma, þjóðirnar hafa tekið þrjú til nítján ár frá inngöngu í ESB þar til evra var tekin uppVerðstöðugleiki til lengri tíma yrði betur tryggður með evru en það sem þarf að breytast er hjá okkur, ekki hjá BrusselNetverslun frá ESB-löndum yrði mun auðveldari fyrir neytendur og minni hætta á tvísköttunBreytingarnar yrðu mest fyrir landbúnaðinn, þar myndi samkeppnisumhverfið breytast verulega en ekki er rýnt sérstaklega í þau mál frá sjónarhóli framleiðendaHöfundur telur vanta fleiri greiningar, einkum á áhrifum á landbúnað og einnig samanburð við önnur ríki sem gengið hafa í ESBEvrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Embed this episode
NOW PLAYING
Breyting en ekki umbylting fyrir íslensk fyrirtæki ef Ísland gengi í ESB
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.