EPISODE · Mar 30, 2026 · 20 MIN
Breytt viðhorf til lögreglu - og í lögreglu; hnignun fiskistofna í hlýnandi Norðurhöfum
from Spegillinn
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, telur það ekki til marks um ótta meðal lögreglumanna þótt þeir skrifi ekki lengur undir lögregluskýrslur með nafni. Þetta merki miklu frekar að þeir vilji vernda friðhelgi einkalífs síns og fá tækifæri til að skilja lögreglubúninginn eftir í vinnunni. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir breyttar aðstæður og breytt viðhorf til lögreglustarfa við Fjölni. Viðvarandi - eða bara krónísk - hlýnun sjávar veldur mikilli og verulega uggvekjandi hnignun lífríkis í norðurhöfum, þar sem ætla má að svo lítið sem 0,1 gráðu hlýnun á áratug valdi að meðaltali um 7,2 prósenta rýrnun fiskistofna á sama tímabili. Þetta er meginniðurstaða stórrar og mikillar rannsóknar spænskra vísindamanna, þar sem rýnt er í frumgögn, niðurstöður yfir 700.000 rannsókna á afkomu nær 34.000 fiskistofna af 1.566 tegundum frá 1993 til 2021. Jónas Jónasson sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun ræðir þetta við Ævar Örn Jósepsson. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Embed this episode
NOW PLAYING
Breytt viðhorf til lögreglu - og í lögreglu; hnignun fiskistofna í hlýnandi Norðurhöfum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.