EPISODE · Mar 5, 2026 · 55 MIN
Brothætt, Nína Sæmundsson og tónlistarpistill Tuma Árnasonar
from Víðsjá
Við hefjum þáttinn á því að heimsækja sviðslistakonuna Steinunni Önnu Knútsdóttur, sem stendur þessa dagana að þátttökuverkefni um hið brothætta og ófullkomna, og safnar bæði brotnu leirtaui og sögum í aðstöðu sinni á Dansverkstæðinu við Hjarðarhaga. Tumi Árnason flytur svo sinn hálfsmánaðarlega pistil um miðbik þáttar og fjallar meðal annars um stafrænan draugagang píanóleikara í parís og rými innan í rými í Hafnarborg. Upplýsingar óskast um listakonuna Nínu Sæmundsson. Áttu verk eftir Nínu Sæmundsson, eða upplýsingar um líf hennar og feril? Svo hljóðar auglýsing sem Listasafn Reykjanesbæjar setti nýverið í loftið, en fyrirhuguð er sýning á verkum Nínu í safninu í haust. Sýningarstjórar eru þær Ynda Eldborg og Viktoría Guðnadóttir, en samkvæmt þeim er enn margt á huldu þegar kemur að lífi og list Nínu.
Embed this episode
NOW PLAYING
Brothætt, Nína Sæmundsson og tónlistarpistill Tuma Árnasonar
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.