EPISODE · Aug 24, 2026 · 50 MIN
Brotnar línur, Heyrðu mig og The Band
from Víðsjá
Nú fyrir helgi kom út fyrsta ljóðabók Védísar Evu Guðmundsdóttur, Brotnar línur. Ljóðsagan segir frá ungri konu sem heldur úr borginni út á land til að vinna í sláturhúsi. Þar kynnist hún köldum veruleika blóðugrar matvælaframreiðslu í neonlýstum slátursalnum, en jafnframt fólkinu í þorpinu og samfélaginu að baki. Védís Eva heimsækir hljóðstofu og segir frá bókinni. Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, flytur sinn fyrsta pistil sem sviðslistarýnir. Hún fjallar um danssýninguna Heyrðu mig, eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur, sem sýnt er í Ásmundarsal um þessar mundir. Verkið i er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur, sem fæddist heyrnarlaus en hefur á sinn einstaka hátt skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona. Nú á miðvikudag stendur til að sýna í Sambíóunum hina klassísku kvikmynd The Last Waltz í leikstjórn Martin Scorsese frá árinu 1978. Við munum því að gefnu tilefni rifja upp eitt afar furðulegt atvik úr sögu þessarar sveitar.
Embed this episode
NOW PLAYING
Brotnar línur, Heyrðu mig og The Band
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.