EPISODE · Jan 9, 2026 · 20 MIN
Brotthvarf Bandaríkjanna og Mercosur-samningur samþykktur
from Spegillinn
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í vikunni að Bandaríkin hygðust segja sig frá starfi og fjármögnun 66 alþjóðastofnana, -samtaka og -sáttmála af ýmsu tagi, þar sem starfsemi þeirra og markmið samræmdust ekki stefnu og hagsmunum Bandaríkjanna. Í 31 tilfelli eru þetta stofnanir og undirstofnanir Sameinuðu þjóðanna, en 35 eru sjálfstæðar, fjölþjóðlegar stofnanir og samtök sem Bandaríkin hafa átt aðild að og fjármagnað að mismiklu leyti. Mercosur samningurinn - stærsti fríverslunarsamningur sem Evrópusambandið hefur gert, var samþykktur af hálfu aðildarríkjanna í dag, eftir viðræður sem staðið hafa í tuttugu og fimm ár. Með samnningnum verður til markaðssvæði með meira en sjö hundruð milljón íbúum í Evrópu og fjórum ríkjum Suður Ameríku.
NOW PLAYING
Brotthvarf Bandaríkjanna og Mercosur-samningur samþykktur
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.