Búið að vinna hættumat fyrir alla íbúabyggð, makríll og leiðtogafundur ESB episode artwork

EPISODE · Dec 16, 2025 · 20 MIN

Búið að vinna hættumat fyrir alla íbúabyggð, makríll og leiðtogafundur ESB

from Spegillinn

Efnismikil skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík fyrir þrjátíu árum leit dagsins ljós í gær; hún varpar meðal annars ljósi á hvernig sveitarfélög á þessum tíma voru mörg hver vanbúin til að verjast stórhættulegum ofanflóðum. Það var til að mynda vitað að á tíu stöðum, þar sem snjóflóðahætta var viðvarandi, var aðeins á einum stað þar sem eftirlit var fullnægjandi; Ísafirði. Hættumöt sem voru gerð gátu oft og tíðum orðið að pólitísku þrætuepli og fámennustu sveitarfélögin höfðu ekki fjárhagslegt bolmagn til að reisa varnarmannvirki. En hvernig er staðan í dag? Sögulegt segir á vef utanríkisráðuneytisins um samkomulag sem Ísland, Noregur, Bretland og Færeyjar hafa gert um skiptingu og stjórn á veiðum á makríl. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir tvennt við það að athuga að segja samkomulagið sögulegt. Áður hafi verið gert hlutasamkomulag þótt Ísland eigi nú í fyrsta sinn þátt í slíku. Í annan stað þá hafi það verið viðurkennt frá 2010 að Ísland sé strandríki í makríl og það tekið þátt í viðræðum um hvernig beri að skipta þessum deilistofni. Einn afdrifaríkasti leiðtogafundur Evrópusambandsins í langan tíma hefst á fimmtudaginn, þar sem tekin verður ákvörðun um fjárhagslegan stuðning við Úkraínu næstu árin. Enn er verið að semja um skilyrði þess að nýta frysta fjármuni rússneska seðlabankans til að setja saman risastórt lán - og það er nánast útilokað að öll aðildarríki bandalagsins samþykki þennan ráðahag.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Dec 16, 2025

Embed this episode

Ready to play

Búið að vinna hættumat fyrir alla íbúabyggð, makríll og leiðtogafundur ESB

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on December 16, 2025.

Can I download this Spegillinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!