EPISODE · Feb 8, 2024 · 50 MIN
Cauda Collective og Eldjárn, Blængur, Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar
from Víðsjá
Við lítum í heimsókn í vinnustofu úti á Granda, þar sem tónlistamennirnir og bræðurnir Halldór og Úlfur Eldjárn taka á móti okkur, en ný tónverk eftir þá bræður verða frumflutt af kammerhópnum Cauda Collective í Hörpu næstkomandi sunnudag. Í strengjakvartettinum Flug/ Vindur sækir Halldór innblástur í teikningar af vindáttum og flugvöllum en í verkinu Mirari veltir Úlfur fyrir sér hæfileika okkar til að komast yfir erfiðleika og sjá ljósið í myrkrinu. Á tónleikunum mun Cauda Collective einnig flytja verkið Fratres eftir Arvo Pert. Trausti Ólafsson verður einnig með okkur í þættinum og að þessu sinni rýnir hann í leikverkið Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar sem sýnt er um þessar mundir í Borgarleikhúsinu. En við byrjum á íslensku bókmenntaverðlaununum. Það vakti talsverða athygli þegar verðlaunin voru veitt síðastliðin miðvikudag að nýr verðlaunagripur hvíldi í höndum verðlaunahafa. Gripurinn nefnist Blængur og er bronshrafn og tekur hann við af verðlaunagrip Jóns Snorra Sigurðssonar, opinnar bókar á granítstöpli. Höfundurinn, myndhöggvarinn Matthías Rúnar Sigurðsson, er gestur okkar í dag.
Embed this episode
NOW PLAYING
Cauda Collective og Eldjárn, Blængur, Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.