Daglegt líf í stríðshrjáðri Úkraínu, stóraukinn loðnukvóti á Íslandi episode artwork

EPISODE · Jan 29, 2026 · 20 MIN

Daglegt líf í stríðshrjáðri Úkraínu, stóraukinn loðnukvóti á Íslandi

from Spegillinn

Í nótt og í morgun gerðu Rússar dróna- og eldflaugaárásir á borgir og bæi vítt og breitt um Úkraínu, eins og þeir hafa gert nánast daglega síðustu vikur. Í gær drápu þeir fimm manns í árás á farþegalest og en í nótt drápu þeir tvær manneskjur og særðu fjögur, þar af tvö börn, í árás á íbúðablokk í útjaðri höfuðborgarinnar Kænugarðs eða Kíev . Veðrið þar er afar íslenskt í dag, grátt yfir, súldviðri og hitinn í kringum frostmark, segir Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari, sem býr í Kænugarði. Snjórinn hálfbráðinn og slabb á götum. Í síðustu viku var hins vegar sautján stiga frost þar og allt að 30 stiga næturfrost í kortunum víða í Úkraínu í næstu viku. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Óskar um daglegt líf í Úkraínu eftir fjögurra ára stríðsátök. Það bárust góðar fréttir af loðnunni í morgun og nú telur Hafrannsóknastofnunar óhætt að veiða tæp 200 þúsund tonn á vertíðinni sem er fjórðungi meira en stofnunin hafði áður gefið út. Fólk í sjávarbyggðum hefur beðið í eftirvæntingu eftir hvort loksins yrði af góðri loðnuvertíð og Ágúst Ólafsson brá sér til Þórshafnar til að ræða við Siggeir Stefánsson, framleiðslustjóra Ísfélagsins þar í bæ. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 29, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Daglegt líf í stríðshrjáðri Úkraínu, stóraukinn loðnukvóti á Íslandi

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on January 29, 2026.

Can I download this Spegillinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!