EPISODE · Mar 31, 2025 · 55 MIN
Dauðadjúpar sprungur, heimspekihugleiðing Freyju Þórsdóttur, slavenskur söngur
from Víðsjá
Ljósmyndarinn Hallgerður Hallgrímsdóttir segir að það eina sem henni hafi dottið í hug að gera þegar hún kom tómhent heim af fæðingardeildinni hafi verið að taka sjálfsmynd. Nokkrum mánuðum síðar opnaði hún skáp sem áður hafði geymt svarthvítar filmur og áttaði sig á því, án þess að muna almennilega eftir því, að hún hafði tekið á þær allar. Dóttir hennar, Dýrleif, fæddist og dó sama daginn, í lok september árið 2015. Ljósmyndabókin Dauðadjúpar sprungur er tileinkuð henni og Hallgerður segir okkur frá bókinni í þætti dagsins. Þá færir Freyja Þórsdóttir okkur fyrstu heimspekilegu hugleiðinguna í nýrri pistlaröð og fjallar um undrun, ólíkar birtingarmyndir fegurðar og forréttindi. Við kynnum okkur líka slavneskan þjóðlagasöng og söngtækni hjá slóvensku söngkonunni Zvezdönu Novakovich. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Embed this episode
NOW PLAYING
Dauðadjúpar sprungur, heimspekihugleiðing Freyju Þórsdóttur, slavenskur söngur
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.