Dewey-flokkunarkerfið og Gegnumtrekkur episode artwork

EPISODE · Apr 6, 2024 · 50 MIN

Dewey-flokkunarkerfið og Gegnumtrekkur

from Bara bækur

Vorið segist vera komið og páskabókasprænan er hafin eins og einn viðmælenda minna komst að orði. Einar Lövdahl var að gefa út sína fyrstu skáldsögu, Gegnumtrekk, að vori. Samanborið við jólabókaflóðið sem telur tugi bóka er páskabókasprænan ögn viðráðanlegri. Við ætlum að ræða við hann um ýmislegt, unga fólkið, angist, hversdagsleikann og leitina að beinu brautinni. Einar hellir upp á könnuna fyrir okkur í lok þáttar. Aprílgabbið kemur við sögu í þættinum, það kemur aftan að sumum sem trúa og hlaupa apríl. Eitt mest áberandi aprílgabb sem ég sá í ár kom frá bókasafni Kópavogs sem plataði eflaust marga bæði upp úr sokkum og skóm þegar tilkynnt var að safnið hefði ákveðið að afnema hið rótgróna Dewey-flokkunarkerfi og innleiða í staðinn litakerfi. Sagt var að rannsóknir sýndu að fólk myndi eftir lit bókakápu betur en nokkru öðru og því væru bláar bækur komnar saman í hillu, rauðar í aðra, gular í enn aðra og svo framvegis. Nú væri hafin ný öld í flokkun bókasafnsbóka. En hvað er þetta Dewey-kerfi? Við leitum svara á Landsbókasafninu og ræðum við Kristínu Lilju Thorlacius Björnsdóttur, gæðastjóra Gegnis. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

NOW PLAYING

Dewey-flokkunarkerfið og Gegnumtrekkur

0:00 50:59

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on April 6, 2024.

What is this episode about?

Vorið segist vera komið og páskabókasprænan er hafin eins og einn viðmælenda minna komst að orði. Einar Lövdahl var að gefa út sína fyrstu skáldsögu, Gegnumtrekk, að vori. Samanborið við jólabókaflóðið sem telur tugi bóka er páskabókasprænan ögn...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!