EPISODE · Jan 10, 2026 · 55 MIN
Djöflarnir ásækja alla tíma
from Bara bækur
Djöflarnir er pólitísk satíra og umdeildasta bók Fjodors Dostojevskís. Hún fjallar um hóp róttæklinga í rússneskum smábæ á síðari hluta 19. aldar sem setur allt á annan endann. Markmiðið er bylting. Stóra samsærið snýst allt um hina dularfullu og myrku aðalpersónu Níkolaj Stavrogín og hina slóttugu hjálparhönd hans Pjotr Verkhovenskí. Þetta er skáldsaga um blekkingar, svik, róttækni og öfgar. Hún fjallar um það hvernig hugmyndir geta smitast og heltekið menn, gert þá andsetna af þeim. Tómarúmið sem myndast þegar guð er dauður og örvænting og öfgar færa til markstangir stjórnmálanna, það tómarúm fyllist oft af einhverju sem tekur yfir án miskunnar og stundum án skynsemi. Viðmælandi: Gunnar Þorri Pétursson.
NOW PLAYING
Djöflarnir ásækja alla tíma
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.