EPISODE · Aug 10, 2026 · 16 MIN
Dularfulli uppfinningamaðurinn sem elskaði íslenska hestinn
from Þetta helst
Þýsk-bandarískur uppfinningamaður, Georg Schrader, sem fann upp frægasta loftventil í heimi dvaldi síðustu þrjú æviárin á Akureyri í upphafi síðustu aldar. Hann bjó á hóteli allan tímann og bað vertinn um að sjá til þess að alltaf væri til kampavín á hótelinu. Af hverju Schrader kom til Íslands til að byrja með liggur ekki fyllilega fyrir. Ásgeir Jónsson, rithöfundur og seðlabankastjóri, hefur kynnt sér leyndardómsfulla sögu þessa manns. Schrader lét gott af sér leiða á Íslandi. Hann gaf út bók um íslenska hestinn, aðra um viðskiptafræði og kostaði eina fyrstu matreiðslubókina sem var gefin út á Íslandi. Hann byggði einnig hótel fyrir reiðmenn og hestana þeirra í Gilinu á Akureyri og stóð það í meira en hálfa öld. Í þætti dagsins er fjallað um sögu Georgs Schraders en hún er háð ákveðnum leyndardómi og er til að mynda ekki til nein ljósmynd af honum þó hann hafi sjálfur tekið margar ljósmyndir hér á landi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Embed this episode
Ready to play
Dularfulli uppfinningamaðurinn sem elskaði íslenska hestinn
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.