Dúnstúlkan í þokunni og Sjálfstætt fólk í nýrri þýðingu episode artwork

EPISODE · Mar 16, 2024 · 50 MIN

Dúnstúlkan í þokunni og Sjálfstætt fólk í nýrri þýðingu

from Bara bækur

Í dag gerum við eins og á vídjóleigunum í gamla daga, tökum eina nýja og eina gamla. Tvær skáldsögur sem báðar fjalla um fólk á fyrri öldum, um og eftir aldamótin 1900, og ekki á ósvipuðum slóðum. Skáldsagan Dúnstúlkan í þokunni eftir Bjarna M. Bjarnason kom út fyrir jólin og var hún tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þar fer Bjarni með okkur í ferðalag í tíma og rúmi, austur á Langanes á 19. öld og fram yfir aldamót en þar segir frá draumförum Jóhannesar Jónssonar, Drauma-Jóa, sem uppi var í raun og veru og sagður búa yfir mikilli fjarskyggnigáfu. Bjarni kemur og heimsækir okkur í síðari hluta þáttar og segir frá þessum einstaka manni og örlögum hans. Svo verður eitt stykki Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness hér á borðum. Hún er skrifuð um það leyti sem útrás Halldórs var að hefjast og þýðingar á skáldsögum hans fóru að birtast hér og þar. Dönsk þýðing á Sjálfstæðu fólki var gefin út um ári eftir að hún kom út hér og var hún eftir fræðimanninn og jafnaldra Halldórs Jakob Benediktsson. Nú hefur bókaforlag í Árósum þýtt verkið upp á nýtt á dönsku, þýðandinn Nanna Kalkar var hér á landi og við hittum hana og spyrjum hvað það þýði fyrir bækur að vera endurþýddar og hvernig Sjálfstætt fólk ber sig í dag en 90 ár eru í ár frá fyrstu útgáfu hennar. Viðmælendur: Bjarni M. Bjarnason og Nanna Kalkar. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

NOW PLAYING

Dúnstúlkan í þokunni og Sjálfstætt fólk í nýrri þýðingu

0:00 50:06

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on March 16, 2024.

What is this episode about?

Í dag gerum við eins og á vídjóleigunum í gamla daga, tökum eina nýja og eina gamla. Tvær skáldsögur sem báðar fjalla um fólk á fyrri öldum, um og eftir aldamótin 1900, og ekki á ósvipuðum slóðum. Skáldsagan Dúnstúlkan í þokunni eftir Bjarna M....

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!