Dýrasti matur Evrópu og sofandi íslenskir neytendur episode artwork

EPISODE · Jun 24, 2026 · 48 MIN

Dýrasti matur Evrópu og sofandi íslenskir neytendur

from Gímaldið · host Gímaldið

Hvergi í Evrópu er dýrara að kaupa í matinn en á Íslandi og hagnaður matvöruverslana heldur áfram að vaxa. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili þar inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, en aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í ýmiss konar þjónustu heldur en í verði á matvörum. Verðskyn neytenda brenglast í verðbólgu segir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Ítarleg úttekt á matvöruverði og hækkunum undanfarinna ára. Viðmælendur í þættinum eru Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri Verðlagseftirlits ASÍ og Brynhildur Pétursdóttur, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.  Þáttastjórnandi er Helga Arnardóttir blaðamaður og nýr liðsmaður Gímaldsins.Meðal þess sem fjallað er um í þættinum:Verðlag á Íslandi mælist 84% hærra en að meðaltali í 27 Evrópulöndum, samkvæmt úttekt Visku. Matvara er 55% dýrari en í ESB-ríkjunum, samkvæmt skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Hærri laun skýri ekki allan verðmuninn. Verðmunurinn sé nær tvöfaldur á við launamuninn, og ofurtollar og fákeppni skýri stóran hluta þess sem umfram er.Engin samkeppnislög ná yfir afurðastöðvar á Íslandi, sem mega því hafa með sér verðsamráð. Páll Gunnar Pálsson segir samningsstöðu bænda veika í því ljósi og hækkun á kjöti eftir 2022 viðvarandi meiri en í öðrum vöruflokkum.Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að lítil verðsamkeppni ríki á matvörumarkaði; samkeppnin snúist oft um önnur atriði á borð við útlit, stærð og fjölgun sjálfsafgreiðslukassa. Prís býður lægsta matvöruverðið, um 4% lægra, samkvæmt Verðlagseftirliti ASÍ.Hagnaður Haga, sem rekur meðal annars Bónus, var 7,4 milljarðar króna 2025 og hefur aukist um 4,7 milljarða á fimm árum. Hagnaður Festi, sem rekur Krónuna, var 6,2 milljarðar og jókst um 3,9 milljarða á sama tímabili, þar af var hagnaður Krónunnar einnar 2,9 milljarðar — tæpur helmingur af heildarhagnaði Festi.Viðar Ingason, hagfræðingur VR, segir laun venjulega hækka til að vinna upp verðbólgu sem þegar er orðin. Sambandið liggi alla jafna í báðar áttir, en algengara sé að það finnist frá verðlagi yfir í laun.Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, benti á hagnaðardrifna verðbólgu — svokallaða gróðaverðbólgu — strax árið 2023 þegar hann var hagfræðingur BHM.Samkeppniseftirlitið byggir á EES-samningnum og Páll Gunnar segir að án hans væri lítið sem ekkert samkeppniseftirlit á Íslandi.Að mati Hagfræðistofnunar myndi 25% lækkun matarverðs við ESB-aðild, eins og varð í Svíþjóð og Finnlandi, leiða strax til 3,5% lækkunar neysluverðs. Afnám tolla og annarra gjalda hefði umtalsverð áhrif til lækkunar.Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir verðskyn fólks brenglast í miklu verðbólguumhverfi. „Við þurfum þjóðarátak í nísku,“ segir Vilhjálmur Hilmarsson hjá Visku.Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þessi umfjöllun er opin en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. 

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jun 24, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Dýrasti matur Evrópu og sofandi íslenskir neytendur

0:00 48:13

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Gímaldið?

This episode is 48 minutes long.

When was this Gímaldið episode published?

This episode was published on June 24, 2026.

Can I download this Gímaldið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!