Edgar Allan Poe og Maður í eigin bíómynd episode artwork

EPISODE · Nov 25, 2023 · 50 MIN

Edgar Allan Poe og Maður í eigin bíómynd

from Bara bækur

Já, það verður auðn og myrkur í þætti dagsins. Bæði óhugnarlegt myrkur og það sem umlykur fólk í kvikmyndahúsum. Og það verður dálítið um tímaflakk, við verðum mest á 19. og 20. öldinni. Við opnum nýja íslenska skáldsögu eftir Ágúst Guðmundsson sem er þekktastur fyrir kvikmyndaleikstjórn en hann er að skrifa um dramataískan og stormasaman kafla í lífi sænska kvikmyndaleikstjórans Ingmar Bergmans. Kvikmyndaleikstjóri notar skáldsögu til að rýna í höfuð kvikmyndaleikstjóra sem er að rýna í eigið líf, þetta er margbrotið og athyglisvert púsluspil. Og sagna- og kvæða úrval eftir bandaríska rithöfundinn og gotneska rómantíkerinn Edgar Allan Poe hefur í fyrsta sinn litið dagsins ljós, um 200 ára gamlir, sígildir og áhrifamiklir textar sem hafa legið brotakenndir í þýðingarsögu íslands á Poe en hana má rekja til 19. aldar. Edgar Allan Poe var brautryðjandi á sviði smásagnagerðar og segja má upphafsmaður glæpasögunnar sem 200 árum síðar hefur nánast aldrei haft það betra. Sögurnar hans hafa líka haft gríðarleg áhrif á furðusögur og hrollvekjur áratugum saman. En í þessu nýja safnriti frá Dimmu útgáfu eru íslensku þýðingarnar, gamlar og nýjar teknar saman í fyrsta sinn, spennandi tímar fyrir þau sem kunna vel við drungarlegar sögur við kertaljós og dragsúg í skammdeginu. Ástráður Eysteinsson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson eru ritstjórar verksins og meðal þýðenda setjast niður með mér og rýna í myrkið og ævi Poe. Viðmælendur: Ágúst Guðmundsson, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Ástráður Eysteinsson. Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Devil's Trill Sonata - Fritz Kreisler. Lesarar: Guðni Tómasson og Viðar Eggertsson. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

NOW PLAYING

Edgar Allan Poe og Maður í eigin bíómynd

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on November 25, 2023.

What is this episode about?

Já, það verður auðn og myrkur í þætti dagsins. Bæði óhugnarlegt myrkur og það sem umlykur fólk í kvikmyndahúsum. Og það verður dálítið um tímaflakk, við verðum mest á 19. og 20. öldinni. Við opnum nýja íslenska skáldsögu eftir Ágúst Guðmundsson...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!