Eldsumbrot á Reykjanesskaga, vargöld í Ekvador og þróunarsamvinna Íslands og Malaví episode artwork

EPISODE · Jan 10, 2024 · 20 MIN

Eldsumbrot á Reykjanesskaga, vargöld í Ekvador og þróunarsamvinna Íslands og Malaví

from Spegillinn

Jarðeðlisfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvika hlaupi úr Svartsengi á næstu dögum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Kristínu Jónsdóttur deildarstjóra á Veðurstofunni oum stöðuna þar syðra, viðvarandi landris frá síðasta gosi, 18. desember, kvikuhólf, kvikugang og kvikuflæði, myndun sigdals og ris lands meðfram börmum hans, aðferðir við mælingar á kviku og mat á goslíkum og fleira. Neyðarástand er í Ekvador og her landsins hefur verið fyrirskipað að ráðast gegn glæpahópum sem ógna öryggi almennra borgara og stunda umfangsmikinn útflutning fíkniefna og eiturlyfja til Norður-Ameríku og Evrópu. Fólk treystir sér vart út fyrir hússins dyr vegna vargaldarinnar og óttast um líf sitt í hvert skipti sem það neyðist til að fara á milli staða, enda morðtíðni hvergi hærri í Rómönsku Ameríku en í þessu landi, sem um árabil var talið öruggasta landið i álfunni. Ásgeir Tómasson segir frá. Malaví er landlukt land í suðvestanverðri Afríku. Þar hafa Íslendingar verið í þróunarsamvinnu við stjórnvöld og stofnanir í hartnær 35 ár og gengið vel. Inga Dóra Pétursdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongve, höfuðstað Malaví, segir að fyrstu tíu árin hafi aðstoðin og samvinnan einkum snúist um fiskveiðar, en feiknarmikið stöðuvatn, Malavívatn, þekur um fjórðung af landinu. Síðan hafi Íslendingar áttað sig á því, segir Inga Dóra, að árangur aðstoðarinnar yrði aldrei mikill, ef ekki yrði unnið að félagslegri uppbyggingu og umbótum meðfram hinu. Nú hefur Ísland byggt fimmtán skóla og fjölda fæðingardeilda í landinu, aðallega í dreifðum og lítt aðgengilegum byggðum. Árangurinn sé bæði áþreifanlegur og mælanlegur; hundruð þúsunda ungmenna hafa lokið skólagöngu, sem annars hefðu ekki fengið mun minni ef nokkra menntun, og tíðni mæðra-, barna- og ungbarnadauða hefur minnkað um tugi prósenta í héraðinu sem starfsemin fer fram í.

NOW PLAYING

Eldsumbrot á Reykjanesskaga, vargöld í Ekvador og þróunarsamvinna Íslands og Malaví

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on January 10, 2024.

What is this episode about?

Jarðeðlisfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvika hlaupi úr Svartsengi á næstu dögum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Kristínu Jónsdóttur deildarstjóra á Veðurstofunni oum stöðuna þar syðra, viðvarandi landris frá síðasta gosi, 18. desember,...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!