ESB-umsókn, árásir Ísraelshers á „örugg svæði“ á Gaza, meðferð utankjörfundaratkvæða episode artwork

EPISODE · Jan 15, 2025 · 20 MIN

ESB-umsókn, árásir Ísraelshers á „örugg svæði“ á Gaza, meðferð utankjörfundaratkvæða

from Spegillinn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir jákvætt að Evrópusambandið líti þannig á að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé enn virk. Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB staðfesti þetta í dag - en Þorgerður átti síðdegis fund með Maros Sefcovic, einum af framkvæmdastjórum ESB, sem fer með viðskiptamál og samskiptin við EES ríkin, Ísland, Noreg og Lichtenstein. Þorgerður hitti einnig Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Björn Malmquist fréttamaður hitti Þorgerði síðdegis. Frá því í maí í fyrra hefur Ísraelsher gert minnst níutíu og sjö árásir á svæði á Gaza, sem herinn hafði áður skilgreint sem svokölluð mannúðarsvæði og hvatt palestínskan almenning til að leita þar skjóls til að tryggja öryggi sitt og sinna. Þetta er niðurstaða rannsóknarteymis breska ríkisútvarpsins BBC, BBC Verify, sem hefur unnið að því undanfarna mánuði að sannreyna fregnir af slíkum árásum. Ævar Örn Jósepsson rýnir í skýrslu teymisins. Í þremur tilfellum sem fjallað hefur verið um síðustu daga komust utankjörfundaratkvæði í alþingiskosningunum ekki til skila. Í Kópavogi urðu 25 utankjörfundaratkvæði innlyksa á bæjarskrifstofum og var ekki komið til talningar, í Norðausturkjördæmi fékk yfirkjörstjórn kassa með atkvæðum 11 dögum eftir að kosið var og ekki er vitað hve mörg þau voru, og tvö utankjörfundaratkvæði skiluðu sér ekki frá Seltjarnarnesi á talningarstað. Í kosningum er alltaf eitthvað um að utankjörfundaratkvæði berist ekki í tæka tíð - En er hægt að horfa til einhverra sérstakra kringumstæðna og telja atkvæði sem koma of seint? Anna Kristín Jónsdóttir ræddi þetta við Bergþóru Sigmundsdóttur lögfræðing og stjórnmálafræðing, sem sá lengi um utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá sýslumanni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

NOW PLAYING

ESB-umsókn, árásir Ísraelshers á „örugg svæði“ á Gaza, meðferð utankjörfundaratkvæða

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on January 15, 2025.

What is this episode about?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir jákvætt að Evrópusambandið líti þannig á að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé enn virk. Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB staðfesti þetta í dag - en Þorgerður átti síðdegis fund með Maros...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!