EPISODE · May 21, 2026 · 20 MIN
Farsóttir og viðbrögð, loftslagsmál og staða Pútíns í sínu föðurlandi
from Spegillinn
Skelfing vegna ebólu hefur gripið um sig í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó þar sem smituðum fjölgar og menn óttast að veiran dreifist hraðar en talið var í fyrstu fyrir tæpum mánuði. Í vor bárust fréttir af hópsýkingu af völdum hantaveiru sem valdið hefur dauðsföllum. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir skilur að eftir covid-faraldurinn vakni meiri áhyggjur hjá fólki hér af farsóttum úti í heimi. Anna Kristín Jónsdóttir talar við hana. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna gerðu í gær ráðgefandi úrskurð Alþjóðadómstólsins í Haag frá því í fyrra að sínum. Þar er kveðið á um skyldu ríkja heims til að verja fólk og umhverfi gegn yfirstandandi loftslagsbreytingum og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hamla gegn þeim. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Vladímír Pútín Rússlandsforseti sneri heim úr Kínaferð í gær og kom þaðan tómhentur, fyrir utan yfirlýsingu um áframhaldandi vináttu og bræðralag þjóðanna tveggja. Og þótt rússneskir fjölmiðlar kenni Kínverjum um árangursleysið ku vera sótt að hart að Pútín á heimavelli. Samkvæmt skýrslu evrópskrar leyniþjónustustofnunar, sem var lekið á ótrúlegan hátt til fjölda fjölmiðla nýlega, óttast forsetinn að verið sé að brugga honum launráð og hefur gripið til harkalegra aðgerða til að komast lífs af. Ingólfur Bjarni Sigfússon tók saman.
NOW PLAYING
Farsóttir og viðbrögð, loftslagsmál og staða Pútíns í sínu föðurlandi
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.