EPISODE · Jun 24, 2026 · 16 MIN
Fólk sem var á Gauksstöðum gagnrýnir tímaramma rannsóknar
from Þetta helst
Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við að tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga þetta ár. Lög um rannsóknarnefndina voru samþykkt á Alþingi nú í júní. Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í bænum Garði á Suðurnesjum á árunum 2009 til 2019 þegar heimilinu var lokað eftir að lögreglurannsókn hófst á því vegna meintra brota á lögum um barnavernd. Rannsóknin var felld niður árið 2021 vegna fyrninga á meintum brotum og vegna þess að brotin þóttu ekki líkleg til sakfellingar. Tvö fyrrverandi fósturbörn á Gauksstöðum gagnrýna tímaramma rannsóknarinnar í viðtölum við Þetta helst. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
NOW PLAYING
Fólk sem var á Gauksstöðum gagnrýnir tímaramma rannsóknar
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jul 2, 2026 ·47m
Jul 1, 2026 ·59m
Jun 26, 2026 ·26m
Jun 25, 2026 ·63m
Jun 25, 2026 ·56m