Formaður Vinstri grænna segir JÁ í ágúst episode artwork

EPISODE · Aug 9, 2026 · 49 MIN

Formaður Vinstri grænna segir JÁ í ágúst

from Gímaldið · host Gímaldið

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, þótt flokkurinn sé formlega andvígur aðild að Evrópusambandinu. Samkvæmt könnunum ætlar yfirgnæfandi meirihluti kjósenda flokksins að segja já í atkvæðagreiðslunni. Rósa Björk segir forystu flokksins verða að leggja við hlustir og bregðast við viðhorfsbreytingunni í flokknum.Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Rósu Björk um Evrópumálin, landsmálin, ríkisstjórnina, NATO, móralinn í flokknum og framtíðina. Meðal þess sem kemur fram í þættinum:Formaðurinn vill halda dyrum opnum en ekki lokuðum. Forystan þurfi að leggja við hlustir þegar rúm 93% kjósenda VG ætla að segja já samkvæmt nýrri könnun og um 65% eru hlynnt aðild.Nokkrar kanónur í flokknum eru búnar að lýsa afstöðu sinni opinberlega. Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi formaður ætlar að segja nei í ágúst, Stefán Pálsson starfar með Áfram Ísland og ungliðahreyfing flokksins starfar með ungum Sjálfstæðis- og Miðflokksmönnum í baráttu fyrir NEI. Formaðurinn segir fjölbreyttar skoðanir endurspegla lýðræðislegan styrk hreyfingarinnar.Lífskjör og staða alþjóðamála eigi stærstan þátt í viðhorfsbreytingu til ESB.Áherslur VG þurfi að heyrast við samningaborðið verði viðræðum haldið áfram: náttúruvernd, auðlindir, hagsmunir bænda, sjávarútvegsmál, réttindi vinnandi fólks og viðbrögð við tækninýjungum.Ríkisstjórnin hafi ekki haldið vel á málinu og Samfylkingin verið fjarverandi í kosningabaráttunni.Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir virkjanablæti, aukið atvinnuleysi, lakan árangur í efnahagsmálum og fyrir að bregðast ekki nógu kröftuglega við útlendingaandúð.NATO er að veikjast og ný bandalög gætu orðið til.Vinstri græn hafa rætt mikið um fortíðina og átt í uppgjöri. Nú vill formaðurinn snúa sér og flokknum að framtíðinni. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. 

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Aug 9, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Formaður Vinstri grænna segir JÁ í ágúst

0:00 49:31

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Gímaldið?

This episode is 49 minutes long.

When was this Gímaldið episode published?

This episode was published on August 9, 2026.

Can I download this Gímaldið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!