Forsetaframboð,, forsetaembættið og framtíð pósthúsa episode artwork

EPISODE · Apr 4, 2024 · 21 MIN

Forsetaframboð,, forsetaembættið og framtíð pósthúsa

from Spegillinn

4. apríl 2024 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfesti í gær að hún hefði íhugað forsetaframboð af mikilli alvöru. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aflýsti för sinni á 75 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins í Brussel og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins frestaði boðuðum fundarhöldum á Austurlandi. Heimildir fréttastofu herma að þeir tveir eigi nú í viðræðum við Guðmund Inga Guðbrandsson, varaformann Vinstri grænna, um framhald ríkisstjórnarsamstarfs flokkanna þriggja. Flest - og jafnvel allt - bendir því til þess að Katrín ætli í framboð og muni tilkynna það áður en þing kemur saman á mánudag, líklega strax á morgun. Ævar Örn Jósepsson ræðir þessa dæmalausu stöðu við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing. Forsetakosningarnar í sumar verða sögulegar, hvernig sem á það er litið. Fari forsætisráðherra fram, sem flest bendir til að verði niðurstaðan, er það stefnubreyting og opnar um leið ákveðna möguleika fyrir forsetaembættið. Þetta segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur í samtali við Frey Gígju Gunnarsson. Í sumar verða tuttugu og sjö pósthús og samstarfspósthús eftir á landinu öllu. Þau voru meira en tvöfalt fleiri fyrir fimmtán árum. Sveitarstjórar í smærri byggðarlögum hafa áhyggjur af þjónustuskerðingu og segja að póstbox komi ekki í stað pósthúss. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Björn Bjarka Þorsteinsson, Unni valborgu Hilmarsdóttur og Jón Björn Hákonarson. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

NOW PLAYING

Forsetaframboð,, forsetaembættið og framtíð pósthúsa

0:00 21:25

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 21 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on April 4, 2024.

What is this episode about?

4. apríl 2024 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfesti í gær að hún hefði íhugað forsetaframboð af mikilli alvöru. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aflýsti för sinni á 75 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins í Brussel og...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!