EPISODE · Aug 13, 2026 · 16 MIN
Fréttirnar í viðtalinu við Björgólf Thor
from Þetta helst
Í júlí var sagt frá því að auðmaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson hefði flutt lögheimili sitt frá Bretlandi til borgarinnar Mílanó á Norður-Ítalíu. Í viðtali við fréttaveituna Bloomberg sagði Björgólfur Thor frá því að skattalegar ástæður væru fyrir þessum flutningi þar sem ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefði breytt aldagömlu skattkerfi sem var hagstætt alþjóðlegum fjárfestum. Björgólfur Thor hefur síðastliðin ár yfirleitt verið nefndur sem ríkasti Íslendingurinn og hefur verið á lista tímaritsins Forbes yfir auðugsta fólk í heimi. Hann hefur um 25 ára skeið verið einn þekktasti fjárfestir landsins. Í viðtalinu við BJörgólf Thor voru hins vegar ýmsar aðrar fréttir en þessi. Hann sagði líka frá því að fjárfestingarfélagið Novator hefði lokað í London og að hann myndi ekki fara í neinar nýjar fjarfestingar vegna þeirrar verðmætabólu sem væri á hlutabréfamarkaði út af uppgangi gervigreindar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Embed this episode
Ready to play
Fréttirnar í viðtalinu við Björgólf Thor
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.