Skip to content
Fyrirgefning og tjáningarfrelsi episode artwork

Sep 25, 2025 16 min

Fyrirgefning og tjáningarfrelsi

from Óli Björn - Alltaf til hægri Hosted by olibjorn

Þú þarft að búa yfir einhverjum innri krafti – trú á hið góða – til að tala með þeim hætti sem Erika Kirk gerði í ræðu á minningarathöf um eiginmann hennar Charlie Kirk – aðeins ellefu dögum eftir hann var myrtur. Erika sækir styrkinn í trúnna á Jesús Krist líkt og eiginmaður hennar gerði. Fæst okkar höfum þennan styrk eða þá bjargföstu trú sem gerir okkur kleift að fyrirgefa þeim sem drepur nákominn ættingja, maka eða börn. Sú hætta er raunveruleg að morðið á Kirk hafi djúpstæð neikvæð áhrif á tjáningarfrelsi í Bandaríkjunum – fólk fari að forðast opinskáar og hreinskiptar umræður – hætti að takast á með orðum í frjálsum rökræðum. Bandaríkjamenn, líkt við hér á Íslandi, hafa gengið út frá því sem sjálfsögðum hlut að ágreiningur sé leystur með rökræðum og í kosningum. Að tap í kosningum sé ekki heimsendir heldur annað tækifæri til að sannfæra aðra sem eru okkur ekki sammála – áður en gengið er næst að kjörborði. Samkvæmt árlegri könnun FIRE á málfrelsi háskóla taldi einn af hverjum fimm nemendum ásættanlegt að nota ofbeldi til að stöðva fyrirlestra sem eru þeim ekki að skapi árið 2020. Árið 2024 var þriðjungur stúdenta þessarar skoðunar – einn af hverjum þremur.

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

Fyrirgefning og tjáningarfrelsi

0:00 16:30

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Frequently asked questions

How long is this episode of Óli Björn - Alltaf til hægri?

This episode is 16 minutes long.

When was this Óli Björn - Alltaf til hægri episode published?

This episode was published on September 25, 2025.

Can I download this Óli Björn - Alltaf til hægri episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.