PODCAST · news
Óli Björn - Alltaf til hægri
by olibjorn
Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er alltaf til hægri.
Episodes
-
Skilvirk leið til að eyðileggja
Nóbelsverðlaunahafinn Gunnar Myrdal, sem oft er sagður arkitekt hugmyndafræði sænskra jafnaðarmanna í velferðarmálum, hélt því fram að þak á leiguverð sé eitt skýrasta dæmið um vonda stjórnarstefnu í mörgum vestrænum löndum. Assar Lindbeck, landi Myrdals og einn áhrifamesti hagfræðingur Svíþjóðar…
more -
Villigötur valdsins
Almenna bókafélagið gaf fyrir nokkru út bókina Villigötur valdsins - Til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun. Þetta er sjöunda bókin mín og er ádeila á útþenslu ríkisins og pólitískan rétttrúnað en um leið persónulegur vegvísir að hugsjónum hægri manns sem hafnar...
-
Nei við tollabandalag - já við heiminum öllum
Með því að ganga til liðs við ESB tökum við okkur stöðu innan tollmúra ríkjabandalags. Okkur verður bannað að athafna okkur utan múranna án sérstaks leyfis og þátttöku allra annarra aðildarlanda. Í stað þess að horfa á heiminn allan ætlar ríkisstjórnin að festa Ísland inn í tollabandalag og færa...
-
Baráttuaðferðir í stjórnmáladeilum
Á árs afmæli lýðveldisins 17. júní 1945 flutti Bjarni Benediktsson (1908–1970) ræðu sem á erindi við okkur í dag ekki síður en fyrir 81 ári. Stjórnmálamenn samtímans gætu mikið lært en ekki síður við öll sem með einum eða öðrum hætti tökum þátt í opinberri umræðu, hvort heldur er í blaðagreinum…
more -
Tímasprengja sem ógnar stöðugleika og lífskjörum í ESB
Lífeyrisskuldbindingar eru eitt stærsta og erfiðasta verkefni sem stjórnvöld í Evrópu standa frammi fyrir. Fátt ógnar framtíð Evrópusambandsins meira en ósjálfbærni lífeyriskerfisins í einstökum löndum. Þegar Íslendingar velta því fyrir sér hvort rétt sé að ganga til liðs við Evrópusambandið…
more -
Að selja Ísland fokdýrt er eina markmiðið sem er ljóst
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland, vill að þjóðin veiti þeim umboð í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst til að hefja aðlögunarviðræður við ESB án þess að nokkuð liggi fyrir um hvað felist í því umboði. Valkyrjur ríkisstjórnarinnar forðast að upplýsa...
-
Pólitískt orðaverkstæði
Orð og skilgreiningar skipta máli. Þetta vita snjallir vinstri sinnaðir hugsjónamenn betur en flestir aðrir og þess vegna hafa þeir lagt áherslu á að breyta merkingu orða eða hreinlega smíða ný orð og orðasambönd. George Orwell varaði við því að sannleikurinn yrði fórnarlamb þegar tungumálið er...
-
Sveiflan til hægri
Síðastliðinn laugardagur – 16. maí – kjördagur – var góður dagur fyrir alla hægrimenn á Íslandi. Haldi forystufólk borgaralegra afla rétt á spilunum geta sveitarstjórnarkosningarnar markað tímamót – orðið straumhvörf í íslenskum stjórnmálum. Fyrir ríkisstjórnarflokkana eru úrslitin hins vegar...
-
Ævintýri í Norðurhöfum
Í október 2010 setti ég fram þá hugmynd, í Morgunblaðsgrein, að Íslendingar ættu að hafa frumkvæði að því að mynda nýtt fríverslunarsvæði á norðurslóðum. Markmiðið er ekki aðeins að mynda fríverslun milli sjö landa (Bandaríkjanna, Kanada, Noregs, Bretlands, Færeyja, Grænlands og Íslands) heldur...
-
„Atvinnustefnuráð“ er lausnarorðið
Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur samþykkt sérstaka atvinnustefnu fyrir landið sem er sögð sú fyrsta hér á landi. Markið er sett hátt og stóru orðin eru ekki spöruð frekar en fyrri daginn til að lýsa stefnunni. Atvinnustefna Íslands er sögð vera vaxtarplan til 10 ára…
more -
Endursýning á pólitísku leikriti
Árið 2009 var sett á fjalirnar pólitísk leiksýning sem stóð yfir tæp fjögur ár. Þá, líkt og nú, var reynt að telja almenningi trú um að um sérstakar samningaviðræður milli Íslands og Evrópusambandsins væri að ræða. Byggt var undir þá von að Íslendingar gætu samið um breytt regluverk...
-
Antonin Scalia: Maður textans
Antonin Scalia var einn áhrifamesti hæstaréttardómari Bandaríkjanna á síðari hluta 20. aldar og fram á þá 21. Hann var fæddur árið 1936 og var skipaður dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna árið 1986 af Ronald Reagan. Scalia lést 13. febrúar 2016 og voru fréttir af andláti hans fluttar um allan…
more -
Hann breytti árfarveginum og stefnu straumsins
Forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri, formaður Sjálfstæðisflokksins, rithöfundur, leikritaskáld, listamaður, útvarpsmaður, blaðamaður og ritstjóri. Hægt er að nota öll þessi starfsheiti til að lýsa Davíð Oddssyni sem lést á heimili sínu sunnudaginn 1. mars aðeins 78 ára að aldri. Með...
-
Ríkisstjórn brostinna vona
Það er ekki sérlega óvæginn dómur yfir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, eftir 14 mánuði í stjórnarráðinu að segja að stjórnin hafi komið litlu í verk og að staða flestra heimila og fyrirtækja sé verri nú en þegar ríkisstjórnin tók við völdum í desember 2024. Hástemmdar yfirlýsingar í upphafi...
-
Endurheimtum stöðu okkar í heiminum
Sem utanríkisráðherra ber Marco Rubio ábyrgð á að framfylgja utanríkisstefnu Donalds Trumps Bandaríkjanna með trúverðugum hætti og á traustum grunni. En hann nálgast verkefnið út frá eigin sannfæringu. Frá því hann tók sæti í öldungadeildinni árið 2011 hefur hann verið haukur í öryggis- og...
-
Kerfisbundið niðurrif borgaralegra réttinda
Hafi einhver efast um eindreginn ásetning kínverska kommúnistaflokksins að virða að vettugi almenn mannréttindi þá hlýtur efinn að hafa horfið eftir að 20 ára fangelsisdómur var kveðinn upp yfir Jimmy Lai, 78 ára útgefanda og stofnanda dagblaðsins Apple Daily. Dómurinn jafngildir lífstíðardómi....
-
Forræðishyggja gegn fjárhagslegu sjálfstæði launafólks
En þrátt fyrir skýran vilja mikils meirihluta landsmanna og þá ekki síst þeirra sem nú eru á leigumarkaði, er verið að ryðja braut félagshyggjunnar. Sameiginlega fjármuni borgaranna skal nota til að byggja upp félagslegt íbúðakerfi. Með góðu og illu, fjárhagslegum hvötum og þvingunum, skal...
-
Hugsaðu sjálfstætt: Konan sem ögraði rétttrúnaði fjölmiðla
Bari Weiss er án nokkurs vafa ein áhrifamesta fjölmiðlakona Bandaríkjanna. Hún hefur skapað sér áhrifastöðu í bandarísku þjóðlífi með baráttu gegn pólitískri rétthugsun og „wok-isma“, og skýrri hugmyndafræði um grunngildi blaðamennsku: sanngirni, hlutlægni og réttar upplýsingar. Bari hefur byggt...
-
Harðstjóri fjarlægður - óvissa og vonir
Óvissan um hvort lýðræði komist aftur á í Venesúela er mikil þótt vonir almennings hafi vaknað eftir handtökuna á Mudoro. Valdakerfi sósíalista stendur óbreytt. Varaforsetinn, Delcy Rodríguez, hefur tekið við og hún er sannfærður sósíalisti og harður andstæðingur Vesturlanda og Bandaríkjanna...
-
Ríkisútvarpið fest í setti
Hafi einhver borið þá von í brjósti að spilin á íslenskum fjölmiðlamarkaði yrðu raunverulega stokkuð upp með sérstakri aðgerðaráætlun menningarmálaráðherra, hefur sá hinn sami orðið fyrir miklum vonbrigðum. Tillögur ráðherra undir hatti aðgerðaráætlunar í málefnum fjölmiðla, sem ríkisstjórnin…
more -
Þyngri byrðar vinstri stjórnar
Fjárlög komandi árs eru fyrstu fjárlög vinstri stjórnar Kristrúnar Frostadóttur – samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokk fólksins. Á grunn þeirra birtist pólitísk stefna stjórnarinnar: Aðalverkfæri ríkisstjórnarinnar er ekki sleggjan, sem Kristrún ætlaði að nota, heldur aukin...
-
Leitin að nýjum og nýjum málstað
Hægt er að draga sögu vestrænna sósíalista frá lokum síðari heimstyrjaldarinnar saman í eina setningu: Stöðug og endurtekin leit að nýjum málstað í baráttunni gegn gildum vestrænna samfélaga og kapítalisma – markaðshyggju. Allar hugmyndir, hvert verkefni, hver krossferð snýst í grunninn um eitt…
more -
Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk
Það væri hægt að sækja í orðakistu forseta Alþingis til að lýsa síðustu viku fyrir ríkisstjórnarflokkana. Djöfulsins, helvítis, andskotans. Þingvikan – frá mánudeginum 1. desember til föstudagsins 5. desember, var ekki sérlega góð fyrir ríkisstjórnarflokkana – var raunar í flestu afleit. Og það…
more -
Gíslar í haldi Ingu og Flokks fólksins
Guðmundur Ingi Kristinsson hefur ákveðið á víkja farsælum og vinsælum skólameistara úr starfi. Þegar forsaga málsins er höfð í huga er illa hægt að komast að annarri niðurstöðu en að baki ákvörðun ráðherrans sé hefndaraðgerð – misnotkun á pólitísku valdi til að koma þeim frá sem er ráðherra og...
-
Grafið undan EES með grófu broti
Ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að leggja verndartolla á kísilmálm frá Íslandi og Noregi markar þáttaskil í samskiptum EES-ríkjanna. Þrátt fyrir áratugalangt samstarf og aðild Noregs og Íslands að innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn var hvorugt landið undanþegið tollunum sem eru…
more -
BBC í krísu - en hvað með RÚV
Breska ríkisútvarpið – BBC er í djúpri kreppu, eftir rökstuddar ásakanir um hlutdrægni, pólitískan rétttrúnað og fréttafalsanir hafa komið fram. Orðstír fréttastofu BBC, sem eitt sitt var talin fyrirmynd annarra fjölmiðla um vönduð vinnubrögð, er í húfi enda illa hægt að treysta lengur að það sem...
-
Hægri menn standa á krossgötum
Við sem erum hægri menn getum ekki einblínt á ofstæki vinstri manna en látið pólitíska rétthugsun og yfirgang svokallaðra hægri mann óátalin. Barátta okkur fyrir frelsi – málfrelsi – er barátta fyrir frelsi allra ekki aðeins þeirra sem eru okkur þóknanlegir. Að öðrum kosti gerum við okkur seka um...
-
Fyrirgefning og tjáningarfrelsi
Þú þarft að búa yfir einhverjum innri krafti – trú á hið góða – til að tala með þeim hætti sem Erika Kirk gerði í ræðu á minningarathöf um eiginmann hennar Charlie Kirk – aðeins ellefu dögum eftir hann var myrtur. Erika sækir styrkinn í trúnna á Jesús Krist líkt og eiginmaður hennar gerði. Fæst...
-
Sleggjan notuð á barnafjölskyldur
Kristrún Frostadóttir lofaði fyrir kosningar að nota sleggju til „negla niður þessa vexti“. Loforðið endurspeglast í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem gefin eru fyrirheit um að fyrsta verk stjórnarinnar sé stöðugleiki og lækkun vaxta. Hvorugt hefur gengið eftir. Verðbólgan hefur reynst...
-
Kyndilberi vonar og frelsis
Venesúela er í rúst – efnahagslega og pólitískt. Samfélagslegir innviðir hafa verið brotnir niður. Mannréttindi eru fótum troðin og milljónir manna hafa flúið land. Nicolás Maduro, lærisveinn og eftirmaður Chavez á forsetastóli, heldur ótrauður áfram við að breyta auðugasta landi Suður-Ameríku í...
-
Prófraun ríkisstjórnarinnar
Þegar þing kemur saman 9. september hefst nýr kafli í sögu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Ráðherrar og þingmenn samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, hafa frá upphafi haldið því að ríkisstjórnin sé verkstjórn, þar sem verkin tali. Ríkisstjórninni hefur ekki enn…
more -
Flokkur á útsölu
Stundum er engu líkara en að saga endurtaki sig, með nýjum leikurum en öðrum blæbrigðum. Í mörgu er staða Flokks fólksins sú sama og Vinstri grænna fyrir rúmum einum og hálfum áratug. Með sama hætti og Vinstri grænir hefur Flokkur fólksins selt stefnu sína í Evrópumálum fyrir aðild að ríkisstjórn...
-
Ríkisstjórn án áttavita
Ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur – samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins – hafa frá upphafi haldið því að ríkisstjórnin væri verkstjórn, þar sem verkin tali. Stefnan sé skýr og umboð óumdeilt. Fyrstu þrjár setningar í stefnuyfirlýsingu...
-
Hvernig lítið furstadæmi kaupir bandarísku valdaelítuna
Donald Trump forseti Bandaríkjanna heimsótti Katar í maí síðastliðnum og átti m.a. fund með Al Thani konungsfjölskyldunni. Þá skoðaði forsetinn Al Udeid herflugstöðina sem er stærsta herstöð Bandaríkjanna á svæðinu. Trump hefur örugglega þakkað fyrir höfðinglega „gjöf": 400 milljóna dollara…
more -
Ég, blýantur - rökin fyrir frjálsum markaði
Hayek sýndi okkur fram á að upplýsingar í samfélaginu eru alltaf dreifðar – enginn einstaklingur eða stofnun býr yfir allri þeirri þekkingu sem þarf til að taka réttar ákvarðanir í efnahagsmálum. Þekkingin sem einstaklingar búa yfir er oft takmörkuð, brotakennd og jafnvel mótsagnakennd, en...
-
Sótt í skúffur Jóhönnu og Steingríms J.
Vinstri ríkisstjórn þriggja flokka undir forsæti Kristrúnar Frostadóttur minnir æ meira á aðra vinstri stjórn – ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna á árunum 2009 til 2013. Þá lögðu Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon til atlögu við atvinnulífið og millistéttina. Skattar voru...
-
Lagt til atlögu við frelsið
Hugmyndafræði Trumps á ekkert skylt við hugsjónir Ronalds Reagans sem var forseti Bandaríkjanna 1980 til 1988. Það er umhugsunarvert að báðir skuli tilheyra Repúblikanaflokknum. Ronald Reagan trúði því að Bandaríkin hefðu ekki aðeins hag af frjálsum viðskiptum heldur bæru siðferðilega skyldu til…
more -
Grafið undan lífskjörum
Með skipulegum hætti hafa andstæðingar viðskiptafrelsis reynt að grafa undan athafnamönnum með ágætum árangri, ekki aðeins í sjávarútvegi heldur einnig í öðrum greinum. Þeir hafa sáð fræjum tortryggni gagnvart þeim sem stunda atvinnurekstur, gert þá sem hagnast á viðskiptum að skotspæni og...
-
Planið er vinstri stjórn og hærri skattar
Næstkomandi laugardag taka kjósendur ákvörðun um hvort hér komist til valda vinstri ríkisstjórn eða borgaraleg ríkisstjórn með öflugum Sjálfstæðisflokki. Skoðanakannanir benda til að fyrri kosturinn verði niðurstaðan þar sem Samfylking og Viðreisn taka höndum saman og skjóta einhverju varadekki...
-
Ný ríkisstjórn - áskoranir og tækifæri
Það var langt í frá sjálfgefið að ríkisstjórnarflokkarnir þrír, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Vinstri grænir, héldu áfram samstarfi í nýrri ríkisstjórn, eftir að Katrín Jakobsdóttir baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Myndun nýrrar ríkisstjórnar er aldrei einföld. Allra síst…
more -
Sundrung og skautun ógna frelsinu
Sundrung og skautun vestrænna samfélaga eru ógnir sem fæstir virðast leiða hugann að. Umburðarlyndi á raunverulega í vök að verjast. Óþol gagnvart þeim sem eru á annarri skoðun vex, óþolinmæði og fordómar sundra og grafa undan lýðræði. Eitrið seytlar um æðar háskólasamfélaga, sem áður voru...
-
Eldar í húsi Samfylkingarinnar
Þegar spurðist út að formaður Samfylkingarinnar telji nauðsynlegt að breyta stefnunni í málefnum hælisleitenda fóru margir af taugum. Stór orð voru látin falla. Svo mikill var pólitíski skjálftinn innan raða Samfylkinga að tveir gamlir formenn töldu sig nauðbeygða til að taka til varna fyrir...
-
Púkinn í fjósinu fitnar og fitnar
Samkvæmt fjárlögum liðins árs var skattgreiðeindum ætlað að greiða Ríkisútvarpinu um 5,7 milljarða króna og á þessu ári um 6,1 milljarð. Þetta þýðir að á ellefu árum hefur ríkismiðilinn fengið í sinn hlut yfir 61 milljarð frá skattgreiðendum með milligöngu ríkissjóðs. Við þetta bætast tekjur af...
-
Lægri skattar - aukin velferð
Alls greiddu einstaklingar um 333 milljörðum króna lægri fjárhæð í tekjuskatt á ellefu ára tímabili (2013-2023) en þeir hefðu greitt ef skatthlutföll og skattareglur hefðu verið óbreytt frá tíð vinstri ríkisstjórnarinnar Samfylkingar og Vinstri grænna 2009 til 2013. Tryggingagjöld hafa lækkað...
-
Með eina tösku ... Pabbi
Pabbi var meðalmaður á hæð, með þykkt hrafntinnu svart liðað hár sem fór ekki að grána fyrr en hann stóð á fimmtugu. Hann var kvikur í hreyfingum enda hjólaði hann alla daga í og úr vinnu, jafnt sumar sem vetur. Pabbi féll frá árið 1991. Aðeins 58 ára gamall. Hann fékk heilablóðfall nokkrum árum...
-
Með eina tösku og poka ... IV. hluti
Af bréfaskriftum Kára er augljóst að það hefur ekki verið einfalt fyrir hann að taka ákvörðun að snúa aftur heim til Íslands. Hann segir móður sinni 25. febrúar 1955 að ekki sé ráðlegt að koma heim að sinni þrátt fyrir atvinnuleysið. Hann vilji vinna sér „inn pening og koma ekki með öllu allslaus...
-
Með eina tösku og poka ... III. hluti
Eftir því sem líður á dvöl æskuvinanna í „fyrirheitna landinu“ verður tóninn þyngri og greinilegt er að Kanada olli þeim töluverðum vonbrigðum. Kári talar um þetta „óttalega“ land og að engin hætta sé á að Ameríka gleypi hann enda sé hann „fullseigur biti og bragðvondur að auki“. Kári og Haukur...
-
Með eina tösku og poka ... II. hluti
Á fyrstu árum sjötta áratug tuttugustu aldarinnar voru fá tækifæri fyrir unga menn á Sauðárkróki. Það er því skiljanlegt að tveir æskuvinir - Kári Jónsson og Haukur Stefánsson - freistuðu gæfunnar í öðru landi; Kanada. Æskuvinirnir voru fullir tilhlökkunar og bjartsýni þegar þeir héldu utan í…
more -
Með eina tösku og poka með tveimur teppum - I. hluti
Saga af tveimur æskuvinum frá Króknum sem freistuðu gæfunnar í Kanada Árið 1954 ákváðu tveir ungir menn frá Sauðárkróki að freista gæfunnar í öðru landi. Æskuvinir vildu reyna fyrir sér í Kanada. Annar þeirra var pabbi, Kári Jónsson og hinn Haukur Stefánsson. Fyrir síðustu jól gaf ég út litla bók...
-
Brotið kerfi
Ég hef lengi haft töluverðar áhyggjur af menntakerfinu og gæði menntunar, allt frá grunnskóla- til háskólastigs. Áhyggjur mínar hafa síst minnkað með árunum og þá sérstaklega þegar kemur að gæðum grunnskólanáms, sem er undirstaða alls annars náms. Hér er ekki við kennara eða foreldra að sakast....
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...