Fyrsta íslenska konan sem gefur út bók og milljón punda seðill episode artwork

EPISODE · Mar 14, 2026 · 50 MIN

Fyrsta íslenska konan sem gefur út bók og milljón punda seðill

from Bara bækur

Mark Twain. Höfundur sem hefur oftsinnis verið þýddur á íslensku og það alveg frá samtíma Twains. Flestir þekkja eflaust sögurnar um Stikilsberja Finn eða Huckleberry Finn. Fyrir skemmstu kom út smásaga eftir Twain, Milljón punda seðillinn í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Það er Sverrir Kristinsson sem gefur út en hann hefur reglulega gefið út gamlar merkilegar bækur í stílhreinum útgáfum frá 2011. Þetta er þó ekki fyrsta þýðing þessarar sögu, sem er einskonar dæmisaga og samfélagsgagnrýni sem kom fyrst út 1893. Við ræðum við Guðna Kolbeinsson þýðanda. Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá gefna út bók eftir sig. Það var ljóðabók sem nefndist Stúlka og kom út árið 1876. Löngu síðar kom út önnur ljóðabók eftir Júlíönu, sem þá var orðin roskin og flutt til Vesturheims; sú nefndist Hagalagðar. Á afmælisári beggja bókanna koma þær nú út saman í einu bindi, önnur 150 ára gömul og hin 110 ára. Ljóðin bera aldurinn vel og vitna um leiftrandi gáfur, seiglu og skopskyn Júlíönu sem var vinnukona frá ungaaldri og hlaut enga formlega skólagöngu. Við fjöllum þessa nýju útgáfu í þættinum og ræðum við Sólveigu Ástu Sigurðardóttur sem ritar eftirmála. Viðmælendur: Guðni Kolbeinsson og Sólveig Ásta Sigurðardóttir.

NOW PLAYING

Fyrsta íslenska konan sem gefur út bók og milljón punda seðill

0:00 50:14

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on March 14, 2026.

What is this episode about?

Mark Twain. Höfundur sem hefur oftsinnis verið þýddur á íslensku og það alveg frá samtíma Twains. Flestir þekkja eflaust sögurnar um Stikilsberja Finn eða Huckleberry Finn. Fyrir skemmstu kom út smásaga eftir Twain, Milljón punda seðillinn í þýðingu...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!