Gaza, Miðausturlönd og héraðslækningar episode artwork

EPISODE · Jan 29, 2024 · 20 MIN

Gaza, Miðausturlönd og héraðslækningar

from Spegillinn

29. janúar 2024 Daginn eftir að Alþjóðadómstóllinn í Haag ákvað að taka til efnislegrar meðferðar kæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríki fyrir brot á alþjóðalögum um þjóðarmorð sökuðu Ísraelsmenn tólf af um það bil 30.000 starfsmönnum Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna við Palestínu um aðild að hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október síðastliðinn. Í kjölfarið ákváðu nokkur ríki, þar á meðal Ísland, að frysta greiðslur til stofnunarinnar. Rætt er við Svein Rúnar Hauksson, lækni og stjórnarmann í Félaginu Ísland-Palestína, um þessa atburði. Sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda eru margir uggandi yfir því að ástandið eigi eftir að versna enn frekar eftir að þrír bandarískir hermenn féllu í drónaárás á bækistöðvar þeirra í Jórdaníu í gær. Íranar eru sakaðir um að hafa staðið á bak við hana. Þeir segjast hvergi hafa komið nærri. Ásgeir Tómasson segir frá. Stefnt er að innleiðingu nýrrar sérnámsleiðar í læknisfræði, héraðslækninga – það eru lækningar í dreifbýli. Héraðslækningar verða þá undirsérgrein heimilislækninga. Eyjólfur Þorkelsson læknir sem stýrði málstofu um héraðslækningar á læknadögum segir þörfina fyrir þessa sérhæfingu mikla. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræðir við hann. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

NOW PLAYING

Gaza, Miðausturlönd og héraðslækningar

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on January 29, 2024.

What is this episode about?

29. janúar 2024 Daginn eftir að Alþjóðadómstóllinn í Haag ákvað að taka til efnislegrar meðferðar kæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríki fyrir brot á alþjóðalögum um þjóðarmorð sökuðu Ísraelsmenn tólf af um það bil 30.000 starfsmönnum...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!