Gaza og Eurovision, Hútar réðust á norskt skip, skýra þarf námskrá episode artwork

EPISODE · Dec 12, 2023 · 20 MIN

Gaza og Eurovision, Hútar réðust á norskt skip, skýra þarf námskrá

from Spegillinn

Rússar voru í fyrra útilokaðir frá þátttöku í Eurovision að áeggjan nokkurra sjónvarpsstöðva sem aðild eiga að EBU Evrópusamtökum útvarpsstöðva. Norrænu ríkisstöðvarnar, þar á meðal RÚV, fóru þar fremstar í flokki undir forystu Finna. Að lokum lét EBU undan, meinaði Rússum þátttöku og rak úr samtökunum. Nú eru uppi háværar raddir um að útiloka skuli Ísrael frá þátttöku í Eurovision vegna þeirra stríðsglæpa sem ljóst þykir að Ísraelsher hafi framið í stríðsrekstri sínum á Gaza. Er þetta sambærilegt? Spegillinn ræddi við Kára Hólmar Ragnarsson, lektor í alþjóðarétti og Stefán Eiríksson útvarpsstjóra. Norska flutningaskipið Strinda er á leið til hafnar eftir að uppreisnarmenn Húta í Jemen skutu á það með flugskeyti í gær. Eldur kviknaði í skipinu, en engan sakaði. Í skýrslu um helstu niðurstöður PISA eru settar fram tillögur um aðgerðir, vegna þess að árangur íslenskra nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og læsi á náttúruvísindi er talsvert lakari en áður hefur mælst. Þar segir að meðal annars sé nauðsynlegt að endurskoða aðalnámsskrá grunnskóla. Spegillinn leit við í Hagaskóla, hitti þar skólastjórann og doktorsnemann Ómar Örn Magnússon og bað hann að útskýra námskrár málin. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Kári Guðmundsson.

NOW PLAYING

Gaza og Eurovision, Hútar réðust á norskt skip, skýra þarf námskrá

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on December 12, 2023.

What is this episode about?

Rússar voru í fyrra útilokaðir frá þátttöku í Eurovision að áeggjan nokkurra sjónvarpsstöðva sem aðild eiga að EBU Evrópusamtökum útvarpsstöðva. Norrænu ríkisstöðvarnar, þar á meðal RÚV, fóru þar fremstar í flokki undir forystu Finna. Að lokum lét...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!