Gervigreind og skák: Dr. Yngvi Björnsson, prófessor episode artwork

EPISODE · Jul 17, 2024 · 54 MIN

Gervigreind og skák: Dr. Yngvi Björnsson, prófessor

from Við skákborðið · host Útvarp Saga

Gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti er Dr. Yngvi Björnsson, prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann var einn fyrsti doktorsmenntaði Íslendingurinn sem lagði áherslu á gervigreind en hann hefur lengi stundað kennslu og rannsóknir á því sviði. Hann er jafnframt áhugamaður um skák og hefur notað tölvuskák sem viðfangsefni í mörgum af sínum rannsóknarverkefnum.Í þættinum ræða þeir félagar um áhuga Yngva á tölvunarfræði, gervigreind og tölvuskák en skákin hefur einmitt átt stóran þátt í þeim áhuga. Yngvi segir að skákin eigi sér langa og merkilega sögu sem mikilvægt umfangsefni í gervigreindarrannsóknum. Hann segir að í ár séu liðin 50 ár frá því að fyrsta heimsmeistaramótið í tölvuskák fór fram og framan af hafi verið mikill áhugi fyrir þessum mótum sem hafi þó farið dvínandi seinni ár. Seinasta opinbera heimsmeistaramótið í tölvuskák verður haldið síðar á þessu ári. Árið 2005 var mótið haldið á Íslandi og var Yngvi einn af skipuleggjendum mótsins. Árið 1996 tók Yngvi þátt í heimsmeistaramótinu ásamt samnemanda sínum, vísindamanninum Andreas Junghanns, en mótið fór fram í Jakarta höfuðborg Indónesíu. Skákforrit þeirra hét The Turk, í höfuðið á skákvél sem byggð var árið 1770. Tyrkinn (e. The Turk) var ekki raunveruleg vél, heldur vélræn blekking. Maður var inni í vélinni sem vann við stjórntækin. Með hæfileikaríkan skákmann falinn inni í vélinni vann Tyrkinn flestar skákirnar. Það lék og vann viðureignir gegn mörgum þar á meðal Napoleon Bonaparte og Benjamin Franklin.Yngvi og Kristján ræddu um Deep Blue ofurtölvuna, AlpahaZero ofurforritið, Stockfish sem er sterkasta skákforriti í heimi og talið vera með styrkleika upp á 3.634 skákstig - þó í raun sé erfitt að meta það nema gegn öðrum skákforritum. Margt annað fróðlegt og skemmtilegt bar á góma og var ákveðið að Yngvi kæmi aftur í heimsókn næsta miðvikudag þar sem þeir félagarnir munu halda áfram að ræða um skák og gervigreind.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jul 17, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Gervigreind og skák: Dr. Yngvi Björnsson, prófessor

0:00 54:03

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Við skákborðið?

This episode is 54 minutes long.

When was this Við skákborðið episode published?

This episode was published on July 17, 2024.

Can I download this Við skákborðið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!