Gestir, Brimurð og Synir himnasmiðs episode artwork

EPISODE · Feb 22, 2025 · 52 MIN

Gestir, Brimurð og Synir himnasmiðs

from Bara bækur

„Við horfum djúpt í augu ákveðinna ferfættra ættingja okkar og bregður við að sjá eitthvað þar að baki, sem áður var óþekkt, en sem nær nú sambandi við okkar innra sjálf, vitsmunalega ef ekki andlega. Við höfum skyndilega öðlast nýja og skýrari sýn. Við höfum mætt augliti persónuleika, þar sem við áður fyrr ákváðum í blindni að ekkert væri annað en einföld eðlisávísun og sjálfvirkni,“ skrifaði kandadíski rithöfundurinn Charles Roberts í sögunni Dýrasagan sem birtist í sagnasafninu Skyldulið óbyggðanna árið 1902. Nafni hans Darwin var mikill innblástur fyrir dýrasagnahöfunda á nítjándu öld, hugmyndum sem ögraði stöðu mannmiðjunar og endurhugsaði eða hvatti til endurhugsunar á sambandi manna og annarra dýra. Dýr og bókmenntir - bara á þessu ári hafa komið út tvær bækur á Íslandi þar sem dýr eru í forgrunni eða skipta miklu máli og við ætlum að taka þær fyrir hér í þættinum í dag. Hildur Knútsdóttir skrifar reglulega um ketti í nóvellum sem hún gefur út inn á milli stærri verka, nú síðast í bókinni Gestir. Draumey Aradóttir gaf út ljóðabókina Brimurð á dögunum þar sem hún yrkir ljóð sem innblásin eru af þeirri sorg að missa hundinn sinn, þar er ljóðmælandinn hundurinn Álfur og hann er allt um lykjandi í bókinni. Svo er það bók sem er aðeins um eina dýrategund, manninn. Og það 12 menn. Synir himnasmiðs er nýjasti sagnasveigur Guðmundar Andra Thorssonar. Þar segir frá einum degi í lífi 12 gjörólíkra manna sem þó tengjast beint og óbeint, allir eru þeir afkomendur Ólafs Jónssonar himnasmiðs eins og hann var kallaður. Við erum öll skyld eins og sagt er hér á landi. Sögur þessara manna eru vafðar saman á athyglisverðan hátt í litríkan sveig umleikinn tónlist og trega. Guðmundur Andri verður gestur minn í lok þáttar. Viðmælendur: Hildur Knútsdóttir, Draumey Aradóttir og Guðmundur Andri Thorsson. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

NOW PLAYING

Gestir, Brimurð og Synir himnasmiðs

0:00 52:27

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 52 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on February 22, 2025.

What is this episode about?

„Við horfum djúpt í augu ákveðinna ferfættra ættingja okkar og bregður við að sjá eitthvað þar að baki, sem áður var óþekkt, en sem nær nú sambandi við okkar innra sjálf, vitsmunalega ef ekki andlega. Við höfum skyndilega öðlast nýja og skýrari sýn....

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!