Goðsögnin sjötug, Vignir á siglingu og leyndardómar skákminnisins: Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og varaborgarfulltrúi episode artwork

EPISODE · Aug 19, 2026 · 54 MIN

Goðsögnin sjötug, Vignir á siglingu og leyndardómar skákminnisins: Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og varaborgarfulltrúi

from Við skákborðið · host Útvarp Saga

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík var gestur þáttarins.Í upphafi þáttar var hringt í stórmeistarann Helga Ólafsson, eina af goðsögnum íslenskrar skákar, en hann varð sjötugur 15. ágúst sl. Honum var óskað til hamingju með tímamótin og stuttlega rætt við hann um Ólympíuskákmótið sem fram fer í Samarkand í Úsbekistan í haust.Mikið hefur verið um að vera hjá íslenskum skákmönnum að undanförnu. Sérstök áhersla var lögð á Vigni Vatnar Stefánsson, sem hefur verið á mikilli siglingu og vann glæsilegan og öruggan sigur á alþjóðlegu móti í Split. Farið var yfir framfarir Vignis, helstu styrkleika hans við skákborðið og hversu langt hann gæti náð. Einnig var fjallað um frammistöðu annarra íslenskra skákmanna erlendis, árangur ungra og efnilegra keppenda í Prag og Brugge og helstu mótin sem eru fram undan hér heima.Þá var rætt um minni skákmanna og mikilvægi þess að geta kallað fram ótal byrjanir, stöður, leikjaraðir og eldri skákir. Einnig var velt upp hvernig sterkustu skákmenn heims reikna stöður marga leiki fram í tímann og hvort framúrskarandi skákminni sé meðfædd gáfa eða færni sem hægt sé að byggja upp með markvissri þjálfun og áralangri reynslu.Að lokum var litið út fyrir landsteinana og rætt um Magnús Carlsen. Honum gekk óvenju illa á Norway Chess fyrr á árinu, þar sem hann tapaði fjórum kappskákum og hafnaði í fjórða sæti. Á Esports World Cup minnti hann hins vegar rækilega á hvers vegna hann er enn talinn besti skákmaður heims. Þar tapaði Carlsen ekki skák og vann mótið með miklum yfirburðum.Einnig komu við sögu tæknivandræðin í bronsviðureign Hikaru Nakamura og Alireza Firouzja, stórmótin í Saint Louis og Praggnanandhaa, sem heldur áfram að skipa sér í fremstu röð ungra skákstjarna heims.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Aug 19, 2026

Embed this episode

Ready to play

Goðsögnin sjötug, Vignir á siglingu og leyndardómar skákminnisins: Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og varaborgarfulltrúi

0:00 54:29

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Við skákborðið?

This episode is 54 minutes long.

When was this Við skákborðið episode published?

This episode was published on August 19, 2026.

Can I download this Við skákborðið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!