Skip to content
Gríma alræðisstjórnar fellur episode artwork

Dec 3, 2022 17 min

Gríma alræðisstjórnar fellur

from Óli Björn - Alltaf til hægri Hosted by olibjorn

Þolinmæði kínversku þjóðarinnar gagnvart hörðum sóttvarnaraðgerðum stjórnvalda í baráttu við Covid-19, virðist á þrotum. Eftir tæp þrjú ár af lokunum sem fylgt hefur verið eftir af hörku af lögreglu, þar sem heilu borgirnar eru settar í sóttkví, er mælirinn loksins fullur. Mótmælin sem brotist hafa út síðustu daga eru líklega mesta áskorun sem Xi Jinping forseti hefur staðið frammi fyrir frá því að hann komst til valda árið 2012. Leiðtogar kínverska kommúnistaflokksins hafa alltaf mætt andófi af mikilli hörku. Brotið mótmæli á bak aftur af grimmd alræðisherra. Því miður er líklegt að vestræn stjórnvöld þegi þunnu hljóði þegar mótmæli verða barin niður af þeirri grimmd sem talin er nauðsynleg. Efnahagslegir hagsmunir sem eru undir ráða of miklu. Stjórnvöld á Vesturlöndum tipla á tánum í kringum ráðamenn í Peking – minnast kurteislega á mannréttindabrot kommúnista en aðeins þó þannig að það komi ofbeldisstjórninni ekki illa. Og eftir því sem mikilvægi Kína í alþjóðlegu efnahagslífi eykst hefur ritskoðun kommúnistaflokksins yfir landamæri orðið auðveldari, skilvirkari og áhrifameiri.

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

Gríma alræðisstjórnar fellur

0:00 17:58

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Frequently asked questions

How long is this episode of Óli Björn - Alltaf til hægri?

This episode is 17 minutes long.

When was this Óli Björn - Alltaf til hægri episode published?

This episode was published on December 3, 2022.

Can I download this Óli Björn - Alltaf til hægri episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.