EPISODE · Feb 25, 2026 · 20 MIN
Gróðureldar, ástand jökla og íslenska óperan
from Spegillinn
Þriggja daga barátta slökkviliðs Borgarbyggðar við Mýraelda árið 2006 brýndi viðbragðsaðila í að huga sérstaklega að hvernig vinna ætti á gróðureldum, segir slökkviliðsstjórinn. Hætta á þeim eykst með lengri þurrkatímabilum og breyttri búsetu í dreifbýli. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Heiðar Örn Jónsson, slökkviliðsstjóra í Borgarbyggð. Á vef Veðurstofunnar segir að jökulárið 2024 - 25 hafi reynst jöklum landsins þungt í skauti, niðurstöður síðustu rannsókna sýni að þeir hafi rýrnað um 15 gígatonn - 15 milljarða tonna - á þessu eina jökulári. Hvað þýðir þetta fyrir stærð jöklanna og framtíð? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Hrafnhildi Hannesdóttur jöklafræðing á Veðurstofu Íslands. Íslenska óperan bauð fram sýningarrétt að ósaminni óperu um Agnesi Magnúsdóttur, væri menningarráðuneytið reiðubúið að leggja til á annan tug milljóna í veglega lokatónleika sem hún vildi halda. Þegar ráðuneytið óskaði eftir frekar skýringum á hvað fælist í slíkum sýningarrétt varð fátt um svör. Samtal er hafið um örlög Agnesar. Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Embed this episode
NOW PLAYING
Gróðureldar, ástand jökla og íslenska óperan
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.