Guðrún Kristjánsdóttir / Svipmynd episode artwork

EPISODE · Mar 11, 2026 · 52 MIN

Guðrún Kristjánsdóttir / Svipmynd

from Víðsjá

Guðrún Kristjánsdóttir er fædd árið 1950 og nam myndlist í Reykjavík og Aix-en-Provence. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1986 og hefur síðan sýnt víða, hér á landi og erlendis. Nýverið opnaði yfirlitssýning á verkum Guðrúnar á Kjarvalsstöðum og það er þar sem Víðsjá hitti listakonuna sem er gestur þáttar í Svipmynd vikunnar. Þær fáu minningar sem Guðrún á úr bernsku tengjast náttúrunni. Hún man til að mynda útsýnið úr bílnum þar sem hún sat í aftursætinu á leið út í náttúruna með föður sínum frístundamálaranum. Seinna tóku við ferðir inn á hálendið með eiginmanni og börnum sem áttu eftir að vera innblástur að listaverkum í ólíka miðla. Guðrún vinnur oft lengi að hverju verki, nálgast það eins og rannsakandi úr ólíkum áttum en leyfir oftar en ekki innsæinu að stýra ferlinu. Hún hefur þróað sitt eigið tungumál í listinni og lagt í það endalausa þolinmæði, enda segir hún tímann vera einn stærsta þáttinn í myndlistariðkun. Og Víðsjá tók sér góðan tíma til að ræða allt þetta og margt annað við Guðrúnu á Kjarvalsstöðum. Ferðir um hálendið, áhrif Karls Kvaran og Matisse, línuna á milli hins óhlutbundna og hlutbundna, þokuna, surtarbrand,sjóndeildarhringinn, útsýni og innsæi. Þolinmæði og tíðaranda. Meira um það í þætti dagsins.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 11, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Guðrún Kristjánsdóttir / Svipmynd

0:00 52:37

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 52 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on March 11, 2026.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!