EPISODE · Feb 3, 2026 · 52 MIN
Gyrðir í Glerhúsinu, Hanna Dís í Hakk og Þegar ég sé þig/rýni
from Víðsjá
Það kom ýmsum á óvart þegar Gyrðir Elíasson tók sig til og opnaði myndlistarsýningu í Garði á Reykjanesi fyrir tæpum tveimur árum og sýndi þar hvorki meira né minna en 1200 myndverk. Gyrðir segir Reykjanesið hafa kynnt undir myndlistarmanninum í sér, þótt hann hafi raunar lengi í sér blundað. Nýverið opnaði hann aðra einkasýningu sína, sem hann nefnir Í morgunbirtu, í Glerhúsinu við Vesturgötu og þangað höldum við í þætti dagsins. Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, að þessu sinni rýnir hann í leikverkið Þegar ég sé þig, sé ég mig, nýtt íslenskt samsköpunarverk sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. En við hefjum þáttinn á því að lita inn í Gallerý Hakk við Óðinsgötu 1 þar sem hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead opnaði nýja sýningu í síðustu viku. Þar sýnir Hanna Dís ólíka muni sem dansa á mörkum hönnunar og myndlistar en sem eiga það sameiginlegt að nýta strá sem efnivið.
Embed this episode
NOW PLAYING
Gyrðir í Glerhúsinu, Hanna Dís í Hakk og Þegar ég sé þig/rýni
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.