Hæfileikamennirnir Sveinbjörn Jónsson og Gauti Páll Jónsson episode artwork

EPISODE · Jul 10, 2024 · 1H

Hæfileikamennirnir Sveinbjörn Jónsson og Gauti Páll Jónsson

from Við skákborðið · host Útvarp Saga

Gestir þáttarins í dag eru þeir Sveinbjörn Jónsson, Súgfirðingur, áhugaskákmaður og fyrrverandi trillukarl og Gauti Páll Jónsson, fyrrverandi formaður Taflfélags Reykjavíkur, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar.Sveinbjörn sagði frá skákstarfinu á Súgandafirði og á Vestfjörðum hér á árum áður en Sveinbjörn sá meðal annars um skólaskák á Vestfjörðum um árbil. Hann sagði frá sterkum skákmönnum á Vestfjörðum og minntist á að Jóhann Þórir hefið haldið eitt af sínu frægu helgarskákmótum á Suðureyri við Súgandafjörð. Sveinbjörn er hagyrðingur góður og hefur samið margar vísur, lög og texta og fór hann með tvær skáktengdar vísur í þættinum. Spiluð voru tvö lög eftir Sveinbjörn. Lagið Driftwood sem  fjallar um eilífðina, hafið og rekavið en hann tileinkaði lagið Hrafni Jökulssyni skákfrömuði sem jarðsettur var í kistu úr Vestfirskum rekaviði og lagið Ættfræði óttans sem er andsvar Sveinbjörns við setningu Einars Ben: "Ótti er virðingar faðir og móðir" en Sveinbjörn hefur miklar mætur á skáldinu Einari Ben.Gauti Páll sagði frá starfinu í Taflfélagi Reykjavíkur og mótahaldi félagsins í sumar en félagið er eitt af fáum skákfélögum sem heldur starfinu gangandi yfir sumarmánuðina. Hann rifjaði upp að þeir Sveinbjörn hafi telft saman í Gallerý Skák fyrir u.þ.b. 10 árum og að síðasa skák þeirra, sem var kappskák, hafi endað með jafntefli. Að launum fékk hann breitt bros frá hógværum Sveinbirni.Þeir félagar ræddu svo um heimsmeistaramót 50 ára og eldri sem fram fer í Kraká í Póllandi en síðasta umferðin verður tefld á morgun. Íslenska sveitin, skipuð "fjórmenningaklíkunni" frægu ásamt stórmeistaranum Þresti Þórhallssyni, leiddi mótið fyrir 7. umferð sem tefld var í gær gegn feykisterkri sveit Bandaríkjamanna. Íslenska sveitin var ein í efsta sætinu fyrir umferðina en tapaði viðureigninni (1-3) og á því veika von á að hremma gullið nema bandaríska sveitin misstígi sig í síðustu tveimur umferðunum. Íslenska sveitin á þó enn góða möguleika á að enda á verðlaunapalli. Tal barst að unga og efnilega skákfólkinu okkar og hinum argentíska Faustino Oro sem í síðasta mánuði varð yngsti alþjóðlegi skákmeistari skáksögunnar og sló þar með met hins bandaríska Abhimanyu Mishra um einn mánuð og fjóra daga. Faustiono er aðeins 10 ára gamall, fæddur 14. október 2013 en nýverið vann hann bestu skákmenn heims, heimsmeistarana Magnús Carlsen og Hikaru Nakamura, í hraðskák (1. og 3. mínútna skákir) á skákþjóni vefsíðunnar Chess.com. 

NOW PLAYING

Hæfileikamennirnir Sveinbjörn Jónsson og Gauti Páll Jónsson

0:00 1:00:37

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Við skákborðið?

This episode is 1 hour and 0 minutes long.

When was this Við skákborðið episode published?

This episode was published on July 10, 2024.

What is this episode about?

Gestir þáttarins í dag eru þeir Sveinbjörn Jónsson, Súgfirðingur, áhugaskákmaður og fyrrverandi trillukarl og Gauti Páll Jónsson, fyrrverandi formaður Taflfélags Reykjavíkur, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar.Sveinbjörn sagði frá...

Can I download this Við skákborðið episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!