Hælisleitendur á hótel Glym, óttast gjaldþrot Reykjavíkur, G20 fundur episode artwork

EPISODE · Sep 8, 2023 · 30 MIN

Hælisleitendur á hótel Glym, óttast gjaldþrot Reykjavíkur, G20 fundur

from Spegillinn

Spegillinn 8. September 2023 Umsjón: Ásgeir T Ómasson Tæknimður: Mark Eldred Stórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Áformað er að hýsa sextíu til sjötíu umsækjendur um alþjóðlega vernd á Hótel Glymi í Hvalfjarðarsveit í haust. Pétur Magnússon sagði frá og talaði við Gísla Davíð Karlsson. Aðeins þrjú af tíu stærstu sveitarfélögum landsins svöruðu spurningalista sem mennta- og barnamálaráðuneytið sendi til að afla upplýsinga um raka- og mygluskemmdir í grunn- og leikskólum. Eftirfylgni og ítrekanir ráðuneytisins dugðu ekki til. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Fulltrúi Flokks fólksins í borgarráði óttast gjaldþrot Reykjavíkurborgar bregðist meirihlutinn ekki við versnandi fjárhag. Árshlutareikningur borgarinnar var 13 milljörðum lakari en áætlarnir gerðu ráð fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn segir rekstur borgarinnar fara stigversnandi. Urður Örlygsdóttir sagði frá og talaði við Kalbrúnu Baldursdóttur. Litlar lirfur sem nærast á birkiþélu hafa fundist á tveimur stöðum. Allt lítur út fyrir að náttúrulegur óvinur þessa skæða sníkjudýrs sé búinn að nema hér land. Valgerður Gréta Gröndal tók saman. Talað var við Brynju Hrafnkelsdóttur skógfræðing í Samfélaginu í nærmynd. Ár er liðið frá því að Elísabet Bretlandsdrottning lést og Karl konungur tók við. Ragnheiður Elín Clausen, annar stofnenda Hins íslenska Royalistafélags, segir Karl hafa staðið sig vel í nýju hlutverki, þvert á það sem gagnrýnendur hans spáðu fyrir um. Erla María Davíðsdóttir talaði við hana. Lítill árangur er talinn nást á ársfundi G20 ríkjanna á Indlandi. Ásgeir Tómasson tók saman. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætlar í vetur að leggja fram frumvarp um greiðslu sanngirnisbóta til fólks sem dvaldi á vistheimilum á vegum ríkisins. Haukur Holm ræddi við hana. Norðmenn kjósa sér nýjar sveitarstjórnir á mánudaginn. Útlit er fyrir að gömul vígi vinstrimanna falli hægrisinnuðum andstæðingum þeirra í skaut. Gísli Kristjánsson sagði frá. Ragnhildur Thorlacíus ræddi við Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing um hamfaraveður víða um heim af völdum annars vegar loftslagsbreytinga og hins vegar El Nino veðurkerfisins.

NOW PLAYING

Hælisleitendur á hótel Glym, óttast gjaldþrot Reykjavíkur, G20 fundur

0:00 30:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 30 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on September 8, 2023.

What is this episode about?

Spegillinn 8. September 2023 Umsjón: Ásgeir T Ómasson Tæknimður: Mark Eldred Stórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Áformað er að hýsa sextíu til sjötíu umsækjendur um alþjóðlega vernd á Hótel Glymi í Hvalfjarðarsveit í haust. Pétur...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!