Hallveig Rúnarsdóttir - Svipmynd episode artwork

EPISODE · Nov 20, 2024 · 53 MIN

Hallveig Rúnarsdóttir - Svipmynd

from Víðsjá

Hallveig Rúnarsdóttir kemur úr mikilli tónlistarfjölskyldu og vissi snemma að hún myndi syngja mikið alla ævi. Hún ætlaði samt ekki endilega að verða söngkona, langaði frekar að verða leikkona og dreymdi um að komast í Guildhall School of Music and Drama í London sem slík. En söngurinn tók yfir og Hallveig endaði í óperudeild skólans. Hún er oft spurð að því hvort alþjóðlega óperusviðið hafi ekki heillað hana en dreymdi miklu frekar um að verða alhliða söngvari. Það hefur sannarlega orðið úr, og verkefnalistinn er orðinn langur og fjölbreyttur, á um 33 ára ferli. Hallveig hefur sungið þó nokkur óperuhlutverk og kemur reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit íslands. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í sígildri- og samtímatónlist árið 2013 fyrir hlutverk sitt sem Michaëla í Carmen hjá Íslensku óperunni, og aftur árið 2018 fyrir hlutverk sitt sem Gilitrutt og söng sinn á Klassíkinni okkar með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún hefur verið sérstaklega virk í flutningi nýrrar tónlistar og er listrænn stjórnandi og stofnandi tónlistarhópsins Cantoque Ensemble, sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir flutning sinn. Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir er gestur Svipmyndar í Víðsjá dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 20, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Hallveig Rúnarsdóttir - Svipmynd

0:00 53:33

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 53 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on November 20, 2024.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!