EPISODE · Feb 20, 2026 · 16 MIN
Hamfarir, hálfsannleikur og leikskólagjöld
from Mál Málanna · host malmalanna
Í vikuyfirliti Máls málanna fer Auðun Georg á um 15 mínútum yfir samhengið á bak við stærstu fréttir vikunnar. Bakkakotsmálið: Ólöf Ásta Farestveit núverandi forstjóri Barna- og fjölskyldustofu um verklag barnaverndar nú á dögum. Athygli vakti í vikunni að Bragi Guðbrandsson, fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu, lýsti því í viðtali við Kastljós Ríkissjónvarpsins að málefni Bakkakots rötuðu ekki á sitt borð meðan hann stýrði stofnuninni. Heilbrigðiskerfið í lamasessi: Við heyrum í Hafdísi Hönnu Ægisdóttur en aldraður faðir hennar hefur mátt hírast á spítalanum síðan í október því ekkert hjúkrunarrými er til fyrir hann og Steinunni Þórðardóttur, formanni Læknafélagsins um bráðamóttöku sem er orðin að geymslu fyrir aldraða. Á meðan rísa glæsihallir ríkisbanka og Alþingis. Alma Möller, heilbrigðisráðherra, viðurkennir að við séum „áratugum of sein“ að byggja upp innviði. Leikskólagjöldin: Líf Magneudóttir, oddviti VG í borginni, kynnti nýja Reykjavíkurmódelið svokallaða. Leikskólagjöld gætu lækkað um nokkur þúsund krónur á mánuði hjá ákveðnum barnafjölskyldum í Reykjavík á meðan aðrir foreldrar gætu þurft að greiða umtalsvert meira.
What this episode covers

NOW PLAYING
Hamfarir, hálfsannleikur og leikskólagjöld
No transcript for this episode yet