Mál Málanna

PODCAST · news

Mál Málanna

Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Auðun Georg Ólafsson tekur saman það sem skiptir okkur máli og fer yfir mikilvægustu mál dagsins.

  1. 95

    7,5% Vextir: „Kristrún, það er ljótt að plata“

    Stýrivextir fóru í 7,5 prósent í morgun og rök Seðlabankans eru þau að tölurnar hafi hreinlega breyst svo mikið að það hafi ekki verið annað í stöðunni. En á meðan forysta bankans talar um „lausbeislaðar verðbólguvæntingar“ þá situr launafólk eftir með hærri reikninga og svikin loforð. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri kynna röksemdir vaxtahækkunar. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandinu sparar hvergi stóru orðin og sakar ráðamenn um „hvítlygi“. Íslendingar hafa búið við sjö prósent vexti að meðaltali í heilan aldarfjórðung. Fáðu samhengið í Máli málanna á undir 15 mínútum.

  2. 94

    Long Covid: Eins og að hella vatni yfir tölvu

    Í dag kynnumst við raunveruleika þeirra fjögur þúsund Íslendinga sem glíma við eftirstöðvar Covid-sýkingar. Við heyrum sögu Gunnars Önnu Svanbergssonar, sérfræðings í sjúkraþjálfun sem varð öryrki eftir að hafa smitast um jólin 2020. Við ræðum líffræðina bak við þreytuna, skort á skilningi í kerfinu og hvers vegna alþjóðlegur vitundardagur Long Covid skiptir máli.

  3. 93

    Trump krefst þátttöku bandamanna

    Nýjasta útspil Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem krefst þess að bandamenn taki við öryggisgæslu í Hormuz-sundi eða greiði fyrir verndina, er mál málanna. Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, rýnir stöðuna. Fáðu samhengið í máli dagsins á undir korteri..

  4. 92

    Vikuuppgjör: Holur, flug og stórtíðindi á fjölmiðlamarkaði

    Stærstu viðskiptatíðindi seinni ára á fjölmiðlamarkaði litu dagsins ljós á fjölmiðlamarkaði. Hinn þrautreyndi fjölmiðlamaður, Pálmi Guðmundsson rýnir í það mál. Patrekur Jaime, fjölmiðlastjarna og áhrifavaldur, er gjörsamlega búinn að fá nóg af holunum í malbikinu og lofar að kjósa hvern þann sem lagar það. Björk Úlfarsdóttir hjá Colas útskýrir hvers vegna göturnar eru eins og þær eru. Jón Karl Ólafsson rýndi í óvenju lágt gengi Icelandair og þá skoðum við hvernig Evrópuumræðan birtist okkur með þeim Birgi Guðmundssyni, Brynjari Níelssyni og Berglindi Guðmundsdóttur. Fáðu samhengið í stærsu mál vikunnar á 20 mínútum.

  5. 91

    Jón Bjarnason: „Sama ESB-fenið og 2009.“

    Í Máli málanna í dag ræðum við við Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, sem varar við því að sagan sé endurtekin í Evrópumálum. Hann lýsir því hvernig ríkisstjórnin nú notar sömu setningarnar og 2009 til að „friða fólk,“ á meðan ESB gerir engar málamiðlanir um grunnreglur sínar. Hvers vegna stöðvuðust viðræður um sjávarútvegsmál á sínum tíma? Fáðu samhengið í máli dagsins á um 15 mínútum.  

  6. 90

    Segja íslenska ríkið greiða hundruð milljóna árlega erlendis fyrir aðgerðir sem hægt er að gera hér á landi

    Í Máil málanna í dag ræðum við skrítinn ráðahag varðandi efnaskiptaaðgerðir Íslendinga sem fluttir eru í stórum stíl til Svíþjóðar þar sem aðgerðin er framkvæmd, oft af íslenskum lækni fyrir sænskt fyrirtæki. Diljá Mist Einarsdóttir þingkona fer yfir sláandi tölur úr heilbrigðisráðuneytinu og við heyrum í læknum hjá Klíníkinni sem telja sig geta nýst kerfinu miklu betur. Er pólitísk hugmyndafræði að koma í veg fyrir skynsamlega forgangsröðun? Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

  7. 89

    Icelandair á útsölu

    Í Máli málanna í dag ræðum við sögulega lágt gengi Icelandair í Kauphöllinni. Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri, varar við því að félagið sé orðið svo ódýrt að það borgi sig hreinlega að kaupa það og leysa það upp. Er fjandsamleg yfirtaka yfirvofandi? Samhengið í máli dagsins á undir 15 mínútum.

  8. 88

    ESB: Lýðræðislegur réttur eða glatað fullveldi?

    Mál málanna er umræðan um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB sem verður lögð fyrir Alþingi í dag. Tómas Möller úr Evrópuhreyfingunni og Erna Bjarnadóttir frá Heimssýn takast á um auðlindir og fullveldi. Einnig heyrum við í Már Wolfgang Mixa dósent um hvort ESB-aðild muni raunverulega lækka húsnæðisvexti eða hvort íslenski bankamarkaðurinn sé einfaldlega of lítill til að laða að erlenda samkeppni. Samhengið í máli dagsins á undir 15 mínútum.

  9. 87

    Vikuuppgjör: Andlát Davíðs Oddssonar, kosningar um ESB, kostnaður við Nýja Landspítalann og átökin í Íran

    Fjölmargir minntust Davíðs Odssonar í vikunni. Við heyrum brot úr viðtali við Davíð úr Reykjavík síðdegis frá árinu 2016 og ræðum við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, svarar fyrir um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna um ESB og Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur metur stöðuna í Íran. Deilt er um framkvæmd og kostnað vegna nýja Landspítalans sem beðið er eftir.

  10. 86

    Kúveit að verða búið með varnareldflaugar: „Ellefu ára stelpa dó í gær“

    Í Mál málanna í dag heyrum við aftur í Andra Ottesen í Kúveit, en ástandið þar hefur versnað snögglega frá því fyrr í vikunni. Hann lýsir því hvernig Íranir nota ódýra dróna til að herja á dýr varnarkerfi og varað er við því að birgðir af varnarflaugum gætu klárast á næstunni.

  11. 85

    1.000 milljarða högg: Svartasta sviðsmynd Landspítalans.

    Rætt við Sigurð Sigurðsson, byggingarverkfræðing, um það sem hann kallar þúsund milljarða högg á ríkissjóð vegna Nýja Landspítalans. Af hverju hefur Landspítalinn verið á teikniborðinu í tvo áratugi á meðan aðrar stórbyggingar rísa á ógnarhraða? Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

  12. 84

    Sprengjuregn og ferðatöskur: Íslendingar í Miðausturlöndum.

    Í Máil málanna í dag fáum við innsýn í hvernig það er að búa í Barein og Kúveit á meðan stríðið í Miðausturlöndum breiðist út. Guðlaug Sigfúsdóttir í Barein segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir í friðsælu landi og Andri Ottesen er með ferðatöskuna klára ef hann þarf að flýja Kúveit með fjölskyldu sína.

  13. 83

    „Ég hef aldrei séð fólk gráta af gleði yfir dauða einhvers“

    Rætt við Leo Karenarson Amiri frá Íran sem er búsettur hér á landi en Karen Stephensen Halldórsdóttir hefur myndað mjög sterk tengsl við hann og fjölskyldu hans. Þau segja 85% Írana fagna innrás Bandaríkjanna og Ísrael.

  14. 82

    40 milljarða búhnykkur í ríkissjóð

    Rætt við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis, um risagreiðsluna sem skilar sér í ríkissjóð í haust. Eru fleiri vörur og fyrirtæki á Ísafirði sem skila fleiri 40 milljörðum og hvernig er umhverfið á Íslandi til verðmætasköpunar?

  15. 81

    Mummi í Mótorsmiðjunni og Inga Sæland um barnavernd

    Í dag ræðum við um hrópandi ábyrgðarleysi í barnaverndarmálum. Hver ber ábyrgð þegar vistheimili ríkisins breytast í vettvang ofbeldis?Mummi “í Götusmiðjunni” Týr Þórarinsson, sakar kerfið um að hafa rústað úrræðum sem virkuðu og leyft mönnum að þvo hendur sínar af ofbeldi fortíðar. Inga Sæland, barnamálaráðherra, boðar aðgerðir. Fáðu samhengið í máli málanna.

  16. 80

    Fögur ár í Úkraínu: Hver er að sigra áróðurstríðið?

    Mál málanna í dag er Úkraína. Á morgun eru fjögur ár liðin frá ólöglegri innrás Rússa í Úkraínu. Algjör kyrrstaða virðist komin í átökin. Albert Jónsson, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi sendiherra í Rússlandi og Jón Ólafsson prófessor við HÍ fóru yfir á Sprengisandi þetta mannskæða stríð sem virðist engan enda ætla að taka. Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

  17. 79

    Hamfarir, hálfsannleikur og leikskólagjöld

    Í vikuyfirliti Máls málanna fer Auðun Georg á um 15 mínútum yfir samhengið á bak við stærstu fréttir vikunnar. Bakkakotsmálið: Ólöf Ásta Farestveit núverandi forstjóri Barna- og fjölskyldustofu um verklag barnaverndar nú á dögum. Athygli vakti í vikunni að Bragi Guðbrandsson, fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu, lýsti því í viðtali við Kastljós Ríkissjónvarpsins að málefni Bakkakots rötuðu ekki á sitt borð meðan hann stýrði stofnuninni. Heilbrigðiskerfið í lamasessi: Við heyrum í Hafdísi Hönnu Ægisdóttur en aldraður faðir hennar hefur mátt hírast á spítalanum síðan í október því ekkert hjúkrunarrými er til fyrir hann og Steinunni Þórðardóttur, formanni Læknafélagsins um bráðamóttöku sem er orðin að geymslu fyrir aldraða. Á meðan rísa glæsihallir ríkisbanka og Alþingis. Alma Möller, heilbrigðisráðherra, viðurkennir að við séum „áratugum of sein“ að byggja upp innviði. Leikskólagjöldin: Líf Magneudóttir, oddviti VG í borginni, kynnti nýja Reykjavíkurmódelið svokallaða. Leikskólagjöld gætu lækkað um nokkur þúsund krónur á mánuði hjá ákveðnum barnafjölskyldum í Reykjavík á meðan aðrir foreldrar gætu þurft að greiða umtalsvert meira.  

  18. 78

    Af hverju er ekki hægt að ryksuga svifrikið?

    Í Mál málanna í dag ræðum við um hættulega loftmengun í Reykjavík sem hefur neytt fólk til að leita á bráðamóttöku. Við heyrum í Björgvin Jóni Bjarnasyni, forstjóra Hreinsitækni, um af hverju rykbinding er „feluleikur“ og Magneu Gná Jóhannsdóttur, borgarfulltrúa, sem vill að borgin kaupi sína eigin ryksugubíla. Er verið að nota svifrykið sem vopn gegn einkabílnum eða vantar hreinlega forgangsröðun í þrifin? Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

  19. 77

    Týndu börnin í skólanum

    Soffía Ámundadóttir, verkefnisstjóri námssamfélaga á Menntavísindasviði HÍ, ræðir um skólaforðun á Íslandi. Talið er að allt að þúsund grunnskólabörn mæti hreinlega ekki í skólann. Hvernig þarf skólakerfið að breytast svo hægt sé að grípa börn sem passa ekki inn í hefðbundið mót skólastarfsins. Fáðu samhengið í Máli málanna á um 10 mínútum.  

  20. 76

    Hvað er þetta Slapp sem allir eru að tala um?

    Við ræðum við Kristján Leó Guðmundsson, tölvunarfræðing og einn af stofnendum nýja íslenska samfélagsmiðilsins Slapp.  Köfum ofan í hvernig rafræn skilríki útrýma bottum og tröllum, hvers vegna miðillinn er auglýsingalaus og af hverju „samfélagsmiðlaþreyta“ er að breyta því hvernig við tengjumst á netinu. Fáðu samhengið í máli dagsins á tæpum 12 mínútum.

  21. 75

    Mál málanna - mánudagur 16. febrúar 2026

    Aldraðir á biðlista: “Áratugum á eftir áætlun.” Hafdís Hanna Ægisdóttir og átakanleg saga föður hennar á níræðisaldri sem hefur þurft að bíða á bráðamóttöku Landspítalans eftir hjúkrunarrými síðan í október. Við heyrum líka í Ölmu Möller heilbrigðisráðherra sem viðurkennir að uppbygging kerfisins sé áratugum á eftir áætlun. Fáðu samhengið í máli dagsins á um 10 mínútum.

  22. 74

    Mál málanna - föstudagur 13. febrúar 2026

    Heitustu málin í vikunni Í Máli málanna í dag rýnum við í stærstu fréttir vikunnar 9.–13. febrúar. Við förum yfir starfsóánægju á Bifröst sem endaði með afsögn rektors, hættulegt ástand gatna í Reykjavík og raddfalsanir með aðstoð gervigreindar. Vandræðaleg afsökunarbeiðni norsks skíðagarps vakti mikla athygli en stærstu málin voru auðvitað tengd bráðamóttökunni á Landspítalanum og gríðarlegt landrof í Reynisfjöru. Samhengið í öllu því helsta sem dundi á okkur í vikunni á rúmu korteri.

  23. 73

    Mál málanna - fimmtudagur 12. febrúar 2026

    30 millimetra slysagildrur Ólafur Guðmundsson, umferðaröryggissérfræðingur, ræðir um hræðilegt ástand gatna í Reykjavík. Hvers vegna eru rásir í malbikinu orðnar tvöfalt dýpri en hættumörk erlendis segja til um? Við berum saman öryggi á flugvöllum og þjóðvegum, ræðum hvers vegna malbikið „skríður“ og spyrjum hvers vegna það vantar skýr viðmið í vegalög um hvenær vegur telst hreinlega ónýtur. Samhengið í máli dagsins á um 15 mínútum.

  24. 72

    Mál málanna - miðvikudagur 11. febrúar 2026

    Eldey á tíma: Verður næsta gos neðansjávar? Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur rýnir í skjálftahrinuna við Eldey. Hvers vegna er jarðskorpan þarna eins og kalt Toffee eða mjúkt smjör? Við förum yfir líkurnar á gosi í náinni framtíð, ógnina við Keflavíkurflugvöll vegna hugsanlegs öskufalls og hvers vegna Reykjanesskaginn virðist vera að losa spennu í öllum áttum. Samhengið í máli dagsins á tæpum 10 mínútum.

  25. 71

    Mál málanna - þriðjudagur 10. febrúar 2026

    Hvað ef internetið á Íslandi hrynur? Í Mál málanna í dag ræðum við við Tryggva Farestveit, framkvæmdastjóra Photon, um brothætta stafræna innviði Íslands. Hvers vegna myndu flestir vefmiðlar liggja niðri ef sambandið við útlönd rofnar? Við ræðum stafrænt fullveldi, hvers vegna við hýsum mikilvæg gögn hjá Amazon og Cloudflare í stað þess að nýta íslensk gagnaver, og hverja við þurfum að ná í ef allt fer í lás.

  26. 70

    Mál málanna - mánudagur 9. febrúar 2026

    Krísan á Bifröst Njörður Sigurjónsson, prófessor við háskólann á Bifröst og Selma Klara Gunnarsdóttir, hagsmunafulltrúi nemenda, lýsa því hvernig stjórnunarhættir rektors hafa leitt til algjörs trúnaðarbrests. Við ræðum þöggunarmenningu, vísanir í siðanefndir og kröfuna um að leiðtogar sýni auðmýkt og stígi til hliðar. Samhengið í máli dagsins á rúmum 10 mínútum.

  27. 69

    Mál málanna - föstudagur 6. febrúar 2026

    Bakkakot, Landspítali og krísa í konungshöllinni. Í vikuuppgjöri Máls málanna rýnum við í hneykslið í Bakkakoti og viðbrögð ráðamanna við því. Ungmenni réðust á töframann í Garðabæ og lögregla hefur tekið upp nýstárlegar forvarnir með því að spila tölvuleiki í Roblox. Við ræðum enn eitt neyðarástandið á Landspítala og heyrum af loforði forsætisráðherra um fyrstu skrefin til að afnema verðtryggingu. Í Noregi er vart rætt um annað en krísuna í konungshöllinni vegna samskipta Mette-Marit krónprinsessu við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Samhengi vikunnar á 20 mínútum  

  28. 68

    Mál málanna - fimmtudagur 5. febrúar 2026

    Bakkakotsmálið: Þegar kerfið sefur á verðinum. Mál málanna í dag er mál drengjanna á Bakkakoti sem Kveikur dró fram í dagsljósið í vikunni. Inga Sæland barnamálaráðherra ræðir ábyrgð kerfisins og boðar ný úrræði á Gunnarsholti fyrir börn í vanda. Eygló Harðardóttir hjá ríkislögreglustjóra fer yfir þann mikla aðstöðumun sem ríkir í barnavernd á milli landshluta. Við rýnum einnig í reiði netverja og kröfuna um réttlæti.

  29. 67

    Mál málanna - miðvikudagur 4. febrúar 2026

    Mitt DNA: Sannleikurinn, skömmin og púslið sem smellur. Í Máil málanna í dag ræðum við við Benediktu Eik Eiríksdóttur sem nýlega stofnaði samtökin Mitt DNA – félag rangfeðraðra. Benedikta deilir magnaðri sögu af því að komast að hinu sanna um faðerni sitt eftir áratuga óvissu. Við ræðum lagalega hliðina á því að „affeðra“ sig og frelsandi kraftinn sem fylgir því þegar sannleikurinn kemur loksins í ljós.

  30. 66

    Mál málanna - þriðjudagur 3. febrúar 2026

    Krísa í konungsríkinu og börn með fitulifur Hneykslið í Noregi: Krónprinsessan Mette-Marit þarf að svara fyrir náin tölvupóstasamskipti við Jeffrey Epstein á sama tíma og sonur hennar er hnepptur í gæsluvarðhald. Við heyrum í Erlu Friðgeirsdóttur í Osló sem lýsir ástandinu. Danir snúa baki við Bandaríkjunum: Ný könnun sýnir að 60% Dana líta nú á sinn nánasta bandamann sem andstæðing. Við ræðum um nýja appið sem Danir nota til að sniðganga bandarískar vörur. Andlát í Vestmannaeyjum: Lögreglan rannsakar andlát á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum. Tveir starfsmenn eru í haldi vegna gruns um ranga lyfjagjöf. Offita barna og fitulifur: Sláandi tölur frá Barnaspítala Hringsins sýna að börn niður í níu ára aldur eru komin á þyngdarstjórnunarlyf. Magnús Scheving ræðir forvarnir og samfélagslega ábyrgð. Mál málanna – Samhengið í fréttunum á 15 mínútum.

  31. 65

    Mál málanna - mánudagur 2. febrúar 2026

    Árásin í Garðabæ, afnám verðtryggingar og Mette-Marit. Mál málanna byrjar á hrikalegri frásögn Daníels Arnar sem varð fyrir tilefnislausri líkamsárás ungmenna í Garðabæ. Við rýnum í loforð Kristrúnar Frostadóttur um afnám verðtryggingar, fjöllum um níu ára börn sem eru komin á þyngdarstjórnunarlyf og tölvupósta Mette Marit krónprinsessu til Jeffrey Epstein sem skekur Noreg. Allt sem skiptir máli í dag á undir 15 mínútum.

  32. 64

    Mál málanna - föstudagur 30. janúar 2026

    Strákarnir okkar eru komnir í undanúrslit á EM. Mál málanna rýnir í frábæran árangur landsliðsins eftir sigurinn gegn Slóveníu. Við heyrum í Sigga Sveins um ótrúlegan karakter liðsins, Þorvald Flemming um stemninguna í Danmörku og þá staðreynd að Íslendingar stýra þremur af fjórum bestu liðum Evrópu. Að lokum segir Gaupi frá því hvernig það er að vera faðir landsliðsþjálfarans á stund sem þessari. Getum við farið alla leið?

  33. 63

    Mál málanna - fimmtudagur 29. janúar 2026

    Strákarnir okkar eru komnir í undanúrslit á EM. Mál málanna rýnir í frábæran árangur landsliðsins eftir sigurinn gegn Slóveníu. Við heyrum í Sigga Sveins um ótrúlegan karakter liðsins, Þorvald Flemming um stemninguna í Danmörku og þá staðreynd að Íslendingar stýra þremur af fjórum bestu liðum Evrópu. Að lokum segir Gaupi frá því hvernig það er að vera faðir landsliðsþjálfarans á stund sem þessari. Getum við farið alla leið?

  34. 62

    Mál málanna - miðvikudagur 28. janúar 2026

    Drengirnir á jaðrinum og kerfi meðaltalsins. Mál málanna rýnir í raunveruleika stráka í íslensku skólakerfi. Sigurður Árni Reynisson, kennari og fyrrverandi lögreglumaður, ræðir hvers vegna kerfið okkar er hannað fyrir „meðaltalið“ en bregst jaðartilvikunum. Við skoðum hvers vegna enginn vill kenna „erfiðu“ strákahópunum, af hverju stimplar og greiningar duga ekki án lausna og hvers vegna festan er það eina sem virkar þegar allt annað bregst.  

  35. 61

    Mál málanna - 27. janúar 2026

    Er “Íslandsbíllinn” biluð drusla? Mál málanna í dag snýst um Tesla Model Y og sláandi niðurstöður. Af hverju falla 45% þessara bíla á fyrsta prófi í Danmörku? Björn Kristjánsson hjá FÍB fer yfir hvernig á þessu stendur.

  36. 60

    Mál málanna - mánudagur 26. janúar 2026

    Sjálfsvirðing eða sæng yfir höfuð? Ísland stendur á krossgötum þar sem „forritun“ okkar nánasta bandamanns hefur snúist gegn okkur. Þorsteinn Pálsson og Steingrímur J. Sigfússon rýna í nýja heimsmynd þar sem Bandaríkin beita bandamenn sína efnahagslegum hernaði og ásælast fullveldi Grænlands. Við ræðum hvort Ísland eigi að leita skjóls í Evrópu, hvers vegna NATO-ríki æfa nú varnir gegn Bandaríkjunum og af hverju sjálfsvirðingin má aldrei víkja fyrir meðvirkni með ofbeldisseggjum.

  37. 59

    Mál málanna - föstudagur 23. janúar 2026

    Vikan var vægast sagt skrautleg. Trump ruglaði saman Íslandi og Grænlandi, hótaði tollum og hernámi en segist svo hafa landað „eilífðarsamkomulagi“ við NATO um auðlindir og loftvarnir. Á meðan berst HSÍ í bökkum þrátt fyrir gengi strákanna á EM og Viðskiptaráð bendir á að við borgum meira fyrir minni þjónustu hjá ríkinu.

  38. 58

    Mál málanna - fimmtudagur 22. janúar 2026

    „Vandamálið eru Bandaríkin: Traustið hrynur.“ Lars Christensen hagfræðingur skrifar harðan pistil um hvernig Bandaríkin hafa svikið alþjóðakerfið. Samúel Karl Ólason greinir ræðu Trump á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos.

  39. 57

    Mál málanna - miðvikudagur 21. janúar 2026

    Blóð, sviti og tvö stig. Ísland lagði Ungverjaland í dramatískum leik á EM í handbolta karla en missti Elvar Örn Jónsson úr leik vegna meiðsla. Henry Birgir Gunnarsson lýsir faglegum vinnubrögðum strákanna gegn andstæðingum og ófaglegum dómurum. Við hitum upp fyrir milliriðilinn í Malmö.

  40. 56

    Mál málanna - þriðjudagur 20. janúar 2026

    Barnalegt hrekkjusvín með kjarnorkukóða? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir rýnir höfuðið á Bandaríkjaforseta eftir Nóbels-fýluna sem hann fór í og hótunina um yfirtöku á Grænlandi. Getum við notað aðferðir úr uppeldisfræði til að setja forsetanum mörk?

  41. 55

    Mál málanna - mánudagur 19. janúar 2026

    Á skákborði stórveldanna.“ Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, rýnir í Mál málanna þar sem Donald Trump hótar að hætta að skuldbinda sig friði og hersveitir NATO eiga þá væntanlega að mætast á Norðurslóðum. Erum við að bakka inn í kalda stríðið þar sem smáþjóðir eins og Ísland eru bara skiptimynt?

  42. 54

    Mál málanna - föstudagur 16. janúar 2026

    „Við erum svolítið á taugum,“ segir Inga Dóra Guðmundsdóttir í Nuuk, þar sem íbúar safna nú neyðarbirgðum vegna hótana Donalds Trump um yfirtöku á Grænlandi. Í föstudagsuppgjöri Máls málanna gerum við upp dramatíska viku þar sem Grænland og Trump bar á góma, afsögn á Alþingi vegna vændismáls og varað var við læknisfræði ChatGPT. Undir lok vikunnar snérist allt um handbolta enda framundan fyrsti leikur strákanna okkar á EM. Viðmælendur: Inga Dóra Guðmundsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ólafur Þór Ævarsson, Jón Sigurðsson og Pétur Halldórsson. Umsjón: Auðun Georg Ólafsson. Framleiðsla: Sýn.

  43. 53

    Mál málanna - fimmtudagur 15. janúar 2026

    Á meðan íbúar Grænlands safna neyðarbirgðum kallar þingmaður þeirra á danska þinginu eftir að landið fái sjálfstæðari rödd á alþjóðavettvangi. Í þætti dagsins ræðum við við Ingu Dóru Guðmundsdóttur, sem búsett er á Grænlandi. Hún lýsir óttanum hjá íbúum á meðan danskar, franskar og þýskar könnunarhersveitir lenda til að verja fullveldi eyjunnar gegn bandamanni okkar í vestri.

  44. 52

    Mál málanna - miðvikudagur 14. janúar 2026

    „Ál, bensen og hormónatruflandi efni.“ Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í umhverfislækningum, varar við því að daglega notkun hreinlætisvara sé ekki eins saklaus og hún virðist. Í þætti dagsins ræðum við um muninn á svitalyktareyði (deodorant) og svitahamlandi efnum (antiperspirant). Hvers vegna berst úði í lungun og af hverju er varasamt að nota svitavörn eftir rakstur? Erum við að fórna heilsunni fyrir lyktina af „suðrænum stormi“?

  45. 51

    Mál málanna - þriðjudagur 13. janúar 2026

    „Gervigreindin skáldaði vísindagrein eftir mig,“ segir Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir í þætti dagsins. Við könnum flókið ástar-haturs samband okkar við gervigreind í heilbrigðiskerfinu. Getur ChatGPT verið lífbjörg sem finnur svör sem læknar misstu af, eða erum við að týna okkur í óáreiðanlegum upplýsingaspuna? Við ræðum um kosti tækninnar, mikilvægi gagnrýnnar hugsunar og hvers vegna við höfum enn þörf fyrir reynslu lækna þegar kemur að heilsu okkar.

  46. 50

    Mál málanna - mánudagur 12. janúar 2026

    „Þetta er algjör kúvending,“ segir Inga Sæland, nýr barna- og menntamálaráðherra. Hún ætlar ekki lengur að vera hrópandinn í eyðimörkinni heldur raungera breytingar í kerfi sem hún segir að hafi brugðist börnum og kennurum. Í þætti dagsins ræðum við um hvers vegna 47% drengja eru ólæsir, af hverju Inga vill afnema skóla án aðgreiningar í núverandi mynd og hvort „finnska leiðin“ sé það sem íslenska skólakerfið þarfnast.

  47. 49

    Mál málanna - föstudagur 9. janúar 2026

    Þrír bjórar. Foreldrar kaupa áfengi fyrir unglinga í þeirri trú að það sé skárra heima fyrir til að fylgjast með neyslunni. Kidda Svarfdal, ritstjóri Hún.is og stjórnandi hlaðvarpsins Fullorðins hefur verið edrú í 16 ár og spyr einfaldlega, af hverju ættum við að kenna börnum okkar að nota eitur? Í þættinum er rætt um unglingadrykkju, áfengismenningu á Íslandi, nýlegar rannsóknir og hvað gerist þegar kerfið bregst.

  48. 48

    Mál málanna - fimmtudagur 8. janúar 2026

    Ríkisstjórnin og borgarstjóri kynntu í fyrra áform um 4.000 nýjar íbúðir í Úlfarsárdal - á svæði sem skipulagt var fyrir 562 íbúðir. Í öllu póstnúmeri 113 (Úlfarsárdal og Grafarholti) eru nú 3.723 íbúðir. Hverfið verður ansi þétt og þröngt með fáum bílastæðum að mati Björns Gunnars Steinþórssonar, íbúa í hverfinu sem sett hefur af stað undirskriftalista til að mótmæla þessum áformum.

  49. 47

    Mál málanna - miðvikudagur 7. janúar 2026

    Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, forstöðumaður hjá Icelandair, útskýrir hvers vegna félagið greiðir milljarða í kolefnisgjöld til Evrópusambandsins sem skekkir verulega samkeppnisstöðuna á flugleiðinni yfir Atlandshafið. Í þætti dagsins spyrjum við hvort þetta sé sanngjarnt. Og hvert fer peningurinn?

  50. 46

    Mál málanna - þriðudagur 6. janúar 2026

    Rithöfundurinn Helen Hafgnýr Cova býr á Íslandi en á fjölskyldu í Venesúela. Þegar Bandaríkin réðust inn í heimaland hennar og handtóku Maduro forseta þá hafði hún strax samband við fjölskyldu sína og vini. Í þættinum í dag spyrjum við: hvenær fórum við að tala um mannréttindi í Venesúela? Munið þið þegar 1.592 hælisleitendur þaðan komu til Íslands - og við gáfum 98% þeirra synjun?

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Auðun Georg Ólafsson tekur saman það sem skiptir okkur máli og fer yfir mikilvægustu mál dagsins.

HOSTED BY

malmalanna

CATEGORIES

URL copied to clipboard!