EPISODE · Oct 12, 2024 · 54 MIN
Han Kang fær Nóbelsverðlaun, Spegillinn í speglinum og Jarðljós
from Bara bækur
Fjallað um nýjan handhafa Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum, Han Kang. Við heyrum hvað Ingunn Snædal þýðandi Grænmetisætunnar eftir Kang og Brynja Hjálmsdóttir sem er ástríðufullur aðdáandi verka hennar hafa að segja um nýja nóbelsskáldið. Við flettum einnig í nýrri þýðingu á bók eftir þýska rithöfundinn Michael Ende, höfund barnabókastórvirkjanna Sögunnar endalausu og Mómó. Bókin heitir Der Spiegel im Spiegel á frummálinu eða Spegillinn í speglinum í þýðingu Sólveigar Thoroddsen, sem þekkir vel til verka Ende og alin upp við barnabækur hans. Sólveig segir betur frá þessari draumkenndu bók sem höfundurinn sjálfur kallaði „Söguna endalausu fyrir fullorðna“. Og Gerður Kristný kemur í heimsókn í lok þáttar og segir frá sinni tíundu ljóðabók sem var að koma út - Jarðljós. Viðmælendur: Sólveig Thoroddsen, Ingunn Snædal, Brynja Hjálmsdóttir, Gerður Kristný. Umsjón: Jóhannes Ólafsson
NOW PLAYING
Han Kang fær Nóbelsverðlaun, Spegillinn í speglinum og Jarðljós
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.