Himintungl yfir heimsins ystu brún og Innanríkið - Alexíus episode artwork

EPISODE · Dec 21, 2024 · 50 MIN

Himintungl yfir heimsins ystu brún og Innanríkið - Alexíus

from Bara bækur

„Sjáum við ekki allt í brotum þegar við lítum aftur?“ segir Pétur, presturinn og sögumaðurinn í nýjustu skáldsögu Jóns Kalmans Stefánssonar Himintungl yfir heimsins ystu brún. Það slær rétta tóninn fyrir þátt vikunnar þar sem tíminn, minnið, og sagan er í forgrunni. Skálsaga Jóns Kalmans gerist í upphafi 17. aldar, eftir siðaskipti, fyrir vísindabyltingu og á Íslandi gerist atburður á Vestfjörðum sem þjóðin horfðist lengi vel ekki í augu við. Baskavígin eru firnastór svartur blettur á sögu Íslendinga, þegar tugir baskneskra hvalveiðimanna voru myrtir með köldu blóði. Bók Jóns Kalman fjallar einum þræði um þessa atburði en líka svo margt annað - þetta er saga um sjálft ritmálið og skrásetningu, sannleikann og lygina, átök, grimmd en líka ást og von. Nýjasta bók Braga Ólafssonar er sjálfsævisöguleg, einum þræði minningarbók, öðrum hugleiðingar, safn útúrdúra, nokkuð nærri fyrirbæri sem kallast auto-theory eða sjálfskenning. Faðir Braga vaknar eina nótt við að ókunnugur maður stendur í svefnherbergisdyrunum á heimili hans við Skólavörðustíg. Aldarfjórðungi síðar rifjar sonurinn upp þessa reynslu förðurins og styðst við heimildir sem óvænt tengdust atvikinu. Samhliða því fer hann á stefnulaust flakk um fortíð og nútíð frá miðbæ Rvk upp á Mýrar og út í heim með viðkomu í hugarheimi annarra höfunda. Viðmælendur: Jón Kalman Stefánsson og Bragi Ólafsson. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Dec 21, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Himintungl yfir heimsins ystu brún og Innanríkið - Alexíus

0:00 50:25

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on December 21, 2024.

Can I download this Bara bækur episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!