Hjálmar H Ragnarsson / Svipmynd episode artwork

EPISODE · Jan 22, 2025 · 50 MIN

Hjálmar H Ragnarsson / Svipmynd

from Víðsjá

Hjálmar H Ragnarsson er fæddur og uppalinn á Ísafirði, sonur Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H Ragnar. Faðir hans var skólastjóri tónlistarskólans á Ísafirði, sem þá var hýstur að stórum hluta á heimili þeirra, svo Hjálmar ólst bókstaflega upp umkringdur tónlist. Hann segir þó að ýmislegt annað hafi komið til greina, þegar hann velti fyrir sér framtíðinni, því á heimilinu voru hin ýmsu mál rædd og krufin og áhugasviðin mörg og djúp. Baráttuandi, ástríða og forvitni hafa leitt Hjálmar áfram og hugur hans ekki síst leitað á jaðarinn, til þess smæsta og hins stærsta. Hann hefur alla tíð tekið virkan og leiðandi þátt í félagsstarfi listamanna og menningarpólitík og var fyrsti rektor Listaháskóla Íslands. Hjálmar hlaut námsstyrk til að stunda háskólanám í tónlist í Brandais háskólanum í Boston snemma á áttunda áratugnum. Þar kynntist hann raftónlist, sem átti hug hans allan á þeim árum þegar ein tölva fyllti heilt herbergi og tónskáld og áhugafólk um hljóðgjafa voru að taka fyrstu tunglskrefin á sviði raftónlistar. Eftir námsdvöl í sónólógíu í Utrecht í Hollandi snéri hann þó aftur til Bandaríkjanna, þar sem hann lauk námi í tónfræði og tónsmíðum við Cornell háskólann og vann mikilvægt frumkvöðlastarf með rannsóknum sínum á tónlist Jóns Leifs. Hjálmar H Ragnarsson hefur verið atkvæðamikill sem tónskáld hér á landi allt frá námslokum og verkaskrá hans er gífurlega fjölbreytt. Á sunnudaginn flytur Cantoque ensemble úrval kórverka Hjálmars á tónleikum Myrkra músíkdaga í Hallgrímskirkju og frumflytur þar glænýtt verk úr smiðju Hjálmars, sem hann samdi við ljóð Snorra Hjartarsonar, Vakir, vakir þrá mín. Hjálmar H Ragnarsson er gestur svipmyndar í Víðsjá dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 22, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Hjálmar H Ragnarsson / Svipmynd

0:00 50:38

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 50 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on January 22, 2025.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!