Hjálpargögn komast ekki til Gaza og áhrif loftslagsbreytinga í hafinu episode artwork

EPISODE · Oct 20, 2023 · 10 MIN

Hjálpargögn komast ekki til Gaza og áhrif loftslagsbreytinga í hafinu

from Spegillinn

20. október 2023 Skortur er farinn að sverfa að á Gaza og enn hefur flutningabílum sem bíða með hjálpargögn við landamæri Egyptalands ekki verið hleypt í gegn. Hamas sagðist hafa sleppt tveimur bandarískum gíslum af mannúðarástæðum síðdegis. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í morgun við undirskriftum meira en tvö þúsund manns sem hvetja stjórnvöld til að fordæma stríðsglæpi Ísraelshers og fjöldamorð á Gaza. Heilbrigðisráðherra segir brýnt að auka forvarnir og fræðslu um skaðsemi ljósabekkja, sé notkun þeirra að aukast hjá ungmennum. Tveir hafa farist í flóðum í Skotlandi þar sem rauð veðurviðvörun er í gildi. Fárviðri og flóð hrella Dani og ekki er búist við að veðrið gangi niður fyrr en á sunnudag. Starfsfólk heilsugæslunnar á Akureyri er uggandi vegna uppsagna og skipulagsbreytinga sem kynntar voru á dögunum. Stjórnendur segja breytingarnar til bóta og þjónusta við bæjarbúa skerðist ekki. Bleiki dagurinn, hápunktur árvekniátaks Krabbameinsfélagsins vegna krabbameina hjá konum er í dag. Árlega greinast 916 konur með krabbamein. Fastagestir í Laugardalslauginni kættust þegar hún var opnuð í dag eftir þriggja vikna lokun og viðgerðir. ----------- Áratuga átök milli Ísraels- og Palestínumanna eru blóðugri en nokkru sinni og engin lausn möguleg önnur en viðurkenning á báðum ríkjum segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir en hún er ekki í augsýn í bráð. Síðustu 20 ár hefur sjávarhitinn verið hár hér við land, sérstaklega fyrir norðan land og líklegt að svo verði áfram, breytingar á sjávarhita og straumum eiga eftir að verða miklar á næstu tíu árum og svo gæti farið að loðna til dæmis hverfi frá Íslandi til Grænlands. Sjónum beint að sjónum í umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga. Í dag er glatt í gömlum hjörtum, - allnokkrum að minnsta kosti því brýnin í Rolling stones gáfu út plötu í dag, þá fyrstu með frumsömdu efni í átján ár. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

NOW PLAYING

Hjálpargögn komast ekki til Gaza og áhrif loftslagsbreytinga í hafinu

0:00 10:29

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 10 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on October 20, 2023.

What is this episode about?

20. október 2023 Skortur er farinn að sverfa að á Gaza og enn hefur flutningabílum sem bíða með hjálpargögn við landamæri Egyptalands ekki verið hleypt í gegn. Hamas sagðist hafa sleppt tveimur bandarískum gíslum af mannúðarástæðum síðdegis. Katrín...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!