Hluthafaspjallið | S02E01 | Amaroq skráð í þremur kauphöllum episode artwork

EPISODE · Jan 9, 2025 · 6 MIN

Hluthafaspjallið | S02E01 | Amaroq skráð í þremur kauphöllum

from Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir · host Brotkast ehf.

Að þessu sinni var Hluthafaspjallinu tvískipt. Í fyrri hluta þáttarins létu ritstjórarnir gamminn geisa en í seinni hluta þáttarins mætti Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland, og fór yfir tíðindi síðasta árs í Kauphöllinni og hvers væri að vænta á nýju ári. Ritstjórarnir byrjuðu á því að fara yfir fjármálatíð Bjarna Benediktssonar, fráfarandi formanns Sjálfstæðisflokksins, en gríðarleg breyting varð á stöðu ríkissjóðs þegar hann tók við sem fjármálaráðherra árið 2013. Um leið var farið yfir pólitíska óvissu með nýrri ríkisstjórn sem þegar er farin að hafa áhrif á sjávarútveginn? Litlu kvótahafarnir eru farnir að selja en ritstjórarnir veltu fyrir sér hvort stóru sjávarútvegsfyrirtækin í Kauphöllinni myndu njóta skráningarinnar. - Mun þetta styrkja stóru skráðu félögin? Um leið var farið yfir fjármögnunarþörf ríkissjóðs í ljósi fjármálaáætlunar. Á skuldabréfamarkaði á árinu munu togast á tveir kraftar. Annars vegar vaxtalækkanir Seðlabankans og hins vegar útgáfuþörf ríkissjóðs á skuldabréfum (sem þýðir aukin fjárþörf og hærri vextir). En að venju var sjónum beint að kauphöllinni og sérstaklega því að mikið er að gerast í kringum „gullmolana þrjá“, Alvotech, Amaroq Minerals Ltd. og Oculis. Fjörugur þáttur að venju! Menn hefðu kannski átt að hlusta á Halldór Kristmannsson um Oculis í október! Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 9, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Hluthafaspjallið | S02E01 | Amaroq skráð í þremur kauphöllum

0:00 6:27

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir?

This episode is 6 minutes long.

When was this Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir episode published?

This episode was published on January 9, 2025.

Can I download this Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!