EPISODE · Mar 28, 2025 · 4 MIN
Hluthafaspjallið | S02E10 | Ægir Páll Friðbertsson í viðtali
from Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir · host Brotkast ehf.
Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, fara yfir þróunina í síðustu viku en ársverðbólgan fór inn fyrir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans nú í mars í fyrsta sinn síðan í desember 2020 og hjaðnar hraðar en greiningaraðilar gera ráð fyrir. Um leið er atvinnuleysið að aukast og ljóst að Seðlabankinn þarf ekki að berjast við þenslu í hagkerfinu og getur því lækkað vexti hraðar en ella. Fjárfestar þurfa gjarnan á súrefni að halda þessa dagana.Þá kom Ægir Páll Friðbertsson, forstjóri Iceland Seafood International (ISI), í heimsókn en félagið var með aðalfund sinn í vikunni. Greina má verulegan umsnúning á rekstri félagsins en um leið er sótt hart að sjávarútveginum með nýrri skattlagningu. Ægir Páll hefur áratuga reynslu af rekstri og ráðgjöf í sjávarútvegi og fer yfir helstu vendingar.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Embed this episode
NOW PLAYING
Hluthafaspjallið | S02E10 | Ægir Páll Friðbertsson í viðtali
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.