EPISODE · Mar 25, 2024 · 20 MIN
Hryðjuverk afhjúpa vanhæfni rússneskra stjórnvalda, ESB rannsakar tæknirisa og offita
from Spegillinn
Enn einu sinni virðast vanhæfni og veikleikar einkenna rússneska stjórnkerfið, segir Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra Íslands í Rússlandi um hryðjuverkið í Moskvu. Ólíklegt er þó að þessi vanhæfni bíti á Vladímír Pútín forseta landsins. Evrópusambandið boðar ítarlega rannsókn á starfsemi nokkurra stærstu netfyrirtækja heimsins. Reynist þau brotleg getur sektin numið tíu prósentum af árlegri veltu þeirra - milljörðum dollara. Ríflega milljarður Jarðarbúa telst of feitur samkvæmt rannsókn sem unnin var á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar árið 2022, tvöfalt fleiri en í síðustu, sambærilegu könnun, sem gerð var 1992. Íslendingar fitna og þyngjast eins og aðrar þjóðir og reyndar meira en margir aðrir, eins og skýrsla OECD, efnahags- og framfarastofnunarinnar frá 2020 sýndi glöggt. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Ölmu Möller landlækni.
Embed this episode
Ready to play
Hryðjuverk afhjúpa vanhæfni rússneskra stjórnvalda, ESB rannsakar tæknirisa og offita
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.