Hvalur 8 kyrrsettur, bæjarráð mótfallið sameiningu MA og VMA episode artwork

EPISODE · Sep 14, 2023 · 9 MIN

Hvalur 8 kyrrsettur, bæjarráð mótfallið sameiningu MA og VMA

from Spegillinn

Hvalveiðiskipið Hvalur átta hefur verið kyrrsett eftir að veiðimönnum mistókst að aflífa langreyð í fyrsta skoti. Samkvæmt verulega hertum reglum matvælaráðherra þarf að skjóta hval tafarlaust aftur ef fyrsta skot geigar. Forstjóri Matvælastofnunar, Hrönn Ólína Jörundsdóttir segir að töluvert hafi liðið á milli skota. Bæjarráð Akureyrar er mótfallið sameiningu Menntaskólans og Verkmenntaskólans í bænum. Seðlabanki Evrópu hækkaði í dag stýrivexti á evrusvæðinu í tíunda skipti í röð. Bjarni Felixson fyrrverandi íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins er látinn. Hann varð áttatíu og sex ára. Bjarna var minnst í fréttatímanum. Pál Winkel fangelsismálastjóri skilur að fangar á Litla-Hrauni mótmæli bágum kjörum. Föngunum verði ekki refsað fyrir. Hunter Biden sonur Bandaríkjaforseta hefur verið ákærður fyrir vopnalagabrot. Borgin Derna í austurhluta landsins varð verst úti í óveðri í Líbíu á dögunum. Áætlað er að um 18-20.000 hafi látið lífið þegar tvær stíflur í nánd við borgina brustu og vatn fossaði um hana. 15% Íslendinga eru andvíg því að fólk ráði því sjálft hvernig það skilgreinir kyn sitt. Karlar eru mun andsnúari því en konur. Þetta sýnir könnun Fjölmiðlanefndar. Fjöldi aldraðra kemur til með að tvöfaldast á næstu tuttugu og fimm árum, og fólki í aldurshópnum áttatíu til áttatíu og níu ára gæti fjölgað um áttatíu og fimm prósent á næsta áratug. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Magnús Þorsteinn Magnússon. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

NOW PLAYING

Hvalur 8 kyrrsettur, bæjarráð mótfallið sameiningu MA og VMA

0:00 9:30

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 9 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on September 14, 2023.

What is this episode about?

Hvalveiðiskipið Hvalur átta hefur verið kyrrsett eftir að veiðimönnum mistókst að aflífa langreyð í fyrsta skoti. Samkvæmt verulega hertum reglum matvælaráðherra þarf að skjóta hval tafarlaust aftur ef fyrsta skot geigar. Forstjóri Matvælastofnunar,...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!