Hver er útlendingurinn í Útlendingnum? episode artwork

EPISODE · Mar 21, 2026 · 53 MIN

Hver er útlendingurinn í Útlendingnum?

from Bara bækur

Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að túlka hvað vakti fyrir Camus með henni. Aðalsöguhetjan sögunnar, sem skrifuð er í fyrstu persónu, er hinn ungi Meursault, sem fréttir af andláti móður sinnar í upphafi bókar. Lesendur fylgjast með líkvökunni og jarðarförinni og síðan hversdagslífi Meursault í Algeirsborg, kynnast nágrönnum hans og ástkonunni Marie. Hversdagsleikanum lýkur þó endanlega þegar Mersault er staddur á strönd um miðbik sögunnar þar sem hann gengur fram á ungan Araba sem liggur á ströndinni og endar á að drepa hann. Í síðari hluta verksins eru atburðir fyrri hlutans endursagðir og túlkaðir af vitnum og lögmönnum í yfirheyrslum og réttarhöldum og að lokum er dauðadómur kveðinn yfir Meursault. Allt þetta er enn í gegnum sjónvarhorn hans og er nokkuð ljóst að þessi undarlega, passíva persóna finnur ekki til eftirsjár. Hann finnur í raun ekki mikið og er holdgervingur hins absúrdíska ástands sem var Camus svo hugleikið. Inn í þetta fléttast líka flókin menningarátök milli nýlenduherranna Frakka og heimamanna, Arabanna í Alsír. Viðmælendur: Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Toby Wikström.

NOW PLAYING

Hver er útlendingurinn í Útlendingnum?

0:00 53:41

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 53 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on March 21, 2026.

What is this episode about?

Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!