Hverafugl, Arnhildur Pálmadóttir og Stomp, clap, hey episode artwork

EPISODE · Jun 18, 2026 · 50 MIN

Hverafugl, Arnhildur Pálmadóttir og Stomp, clap, hey

from Víðsjá

Hverafugl kallast ný hátíð sem sett verður í Hveragerði í næstu viku. Þar hafa listrænir stjórnendur, þau Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir stefnt saman tónlistarfólki úr ólíkum kimum tónlistarsenunnar. Hátíðin hefur verið lengi í undirbúningi með heimafólki og hluti efnisskránnar er tónlist tengd svæðinu en tónleikar munu einnig spretta upp á óvæntum stöðum um bæinn. Við ræðum við Ingibjörgu Ýr í þættinum. Arnhildur Pálmadóttir var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur þetta árið við hátíðlega athöfn í Höfða í gær, og mun það vera í fyrsta sinn sem arkitekt hlotnast sá heiður. Við höfum átt nokkur góð samtöl hér í þættinum við Arnhildi í gegnum tíðina, og við rifjum upp brot úr einu slíku. Stomp Clap Hey er hugtak yfir tónlistarfyrirbæri sem netverjar keppast nú um að skilgreina sem og að stimpla tiltekna listamenn með. Þetta á við um tónlist sem sækir í akústísk hljóðfæri, kassagítara, kontrabassa, bongótrommur, tambúrínur og þar fram eftir götunum og einkennast lög, sem tilheyra þessari tónlistarstefnu, gjarnan af stappi, klappi og samsöng þar sem orðið hey er kallað inn í tónlistina. Við tökum tónlistarfræðinginn Arnar Eggert Thoroddsen tali um þessa nýju en á sama tíma gömlu tónlistarstefnu.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jun 18, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Hverafugl, Arnhildur Pálmadóttir og Stomp, clap, hey

0:00 50:43

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 50 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on June 18, 2026.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!