Hvernig verja á innviði í eldgosi? Loftslag, landbúnaður og ræktun episode artwork

EPISODE · Oct 30, 2023 · 10 MIN

Hvernig verja á innviði í eldgosi? Loftslag, landbúnaður og ræktun

from Spegillinn

Síðasta sólarhring hefur Ísraelsher gert árásir á 600 skotmörk á Gaza. Forsætisráðherra Ísraels sagði í dag að árangur væri að nást gegn Hamas. Forsætisráðherra Íslands vissi ekki að Ísland myndi sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu um vopnahlé á Gaza fyrr en eftir að fundur um hana hófst. Tölvupóstur þess efnis var sendur starfsmanni forsætisráðuneytisins ellefu mínútum áður en fundurinn hófst. Stjórnarandstaðan vill að boðað verði til þingfundar hið fyrsta. Enn rís land á Reykjanesskaga norðvestan við Þorbjörn hjá Svartsengi og skjálftavirkni er viðvarandi. Nýjar gasmælingar sýna engar breytingar og samkvæmt fyrstu drögum að úrvinnslu á glænýjum myndum virðist vera að draga úr landrisi. Kínverska byggingafyrirtækið Evergrande fær fimm vikna frest til að semja við lánardrottna um rúmlega 45 þúsund milljarða króna skuldir. Ella blasir gjaldþrot við. Birna Stefánsdóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár. Hvernig er hægt að verja hina mikilvægu innviði við Svartsengi fari að gjósa þar? Hvað tekur langan tíma að reisa varnargarða fyrir Grindavík og jarðvarmavirkjun HS orku í Svartsengi? Hvernig er hægt að verja vatnsból og lagnir? Rætt er við Ara Guðmundsson verkfræðing sem fer fyrir vinnu á vegum almannavarna um varnir innviða á Reykjanesskaga. Hvort er hin fyrirsjáanlega mikla hlýnun og gjörbreyttu aðstæður hér góðar fréttir eða slæmar fyrir íslenskan landbúnað og ræktun almennt? Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógvistfræðingur er spurður út í áhrif loftslagsbreytinga. Dómari í Hong Kong gaf í dag stjórnendum kínverska fasteignafélagsins Evergrande fimm vikna frest til að leggja fram áætlun um með hvaða hætti þeir ætluðu að greiða skuldir sínar. Ella yrði það tekið til gjaldþrotaskipta. Evergrande er skuldugasta fasteignafyrirtæki í heiminum. Gjalþrotið gæti haft alvarleg áhrif á þjóðarhag í Kína. Ragnhildur Thorlacius hafði umsjón með Speglinum. Magnús Þorsteinn Magnússon var tæknimaður. Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

NOW PLAYING

Hvernig verja á innviði í eldgosi? Loftslag, landbúnaður og ræktun

0:00 10:24

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 10 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on October 30, 2023.

What is this episode about?

Síðasta sólarhring hefur Ísraelsher gert árásir á 600 skotmörk á Gaza. Forsætisráðherra Ísraels sagði í dag að árangur væri að nást gegn Hamas. Forsætisráðherra Íslands vissi ekki að Ísland myndi sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu um...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!